Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri/ hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

04.02.2026

Umsóknarfrestur

25.02.2026

Teymisstjóri/ hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna

Barna- og unglingageðdeild Landspítala óskar eftir reynslumiklum hjúkrunarfræðingi í starf leiðtoga nýs teymis sem er falið að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast neyðarvistunar á Stuðlum. Starfið heyrir undir barna- og unglingageðdeild þar sem aðal starfsstöð teymisstjóra verður en þjónusta verður einnig veitt á öðrum deildum Landspítala og Stuðlum í nánu samstarfi við þverfaglegt teymi fagfólks.

Teymisstjóri verður leiðandi í mótun samvinnu og framtíðarsýnar með hagaðilum og stjórnendum á barna- og unglingageðdeild. Fagaðilum sem ráða sig til þjónustu í nýju teymi býðst markviss þjálfun og fræðsla, hérlendis sem erlendis.

Starfshlutfall er 80-100%. Starfinu fylgja bakvaktir og vel er gætt að hvíldartíma starfsfólks. Ráðið verður í starfið eftir samkomulagi.

Barna- og unglingageðdeild samanstendur af þremur deildum á Landspítala; legudeild, dagdeild og göngudeild. Á deildunum er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Þar starfa um 100 einstaklingar. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Teymisvinna er í kjarna starfanna á barna- og unglingageðdeild og handleiðsla frá reynslumiklum fagaðilum stendur til boða. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Forysta í þverfaglegu teymi um heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast innskriftar á neyðarvistun Stuðla

  • Heilbrigðisþjónusta í samræmi við gagnreynda þekkingu

  • Utanumhald og yfirsýn yfir starfsemi teymis

  • Þróun þjónustu og gæða- og umbótastarfi á þverfaglegum grundvelli

  • Samskipti við tengiliði samstarfsstofnana í verkefninu og annarra deilda Landspítala

  • Náin samvinna við stjórnendur barna- og unglingageðdeildar

  • Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Þekking og reynsla af meðferðar- og/ eða ráðgjafastörfum

  • Leiðtogahæfni, reynsla af teymisstjórnun er kostur

  • Brennandi faglegur áhugi á málefnum barna sem glíma við flókinn samsettan vanda og fjölskyldum þeirra

  • Hæfni til að þróa og aðlaga heilbrigðisþjónustu að fjölbreyttum þörfum notenda

  • Faglegur metnaður, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að takast á við krefjandi verkefni

  • Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum

  • Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu

  • Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli

  • Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Tungumálakunnátta: íslenska 4/5

Staðsetning: Dalbraut, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurveig Sigurjónsd Mýrdal

Forstöðuhjúkrunarfræðingur

Tölvupóstur: sigurves@landspitali.is

Sími: 543-4300

Valgerður Björg Hafsteinsdóttir

Aðstoðardeildarstjóri

Tölvupóstur: valgehaf@landspitali.is

Sími: 543-4300

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri/ hjúkrunarfræðingur í heilbrigðisþjónustu við börn á félagslegri bráðamóttöku ungmenna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

04.02.2026

Umsóknarfrestur

25.02.2026