
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri á Heilbrigðisvísindabókasafni
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.02.2026
Umsóknarfrestur
23.02.2026
Verkefnastjóri á Heilbrigðisvísindabókasafni
Landspítali auglýsir lausa stöðu verkefnastjóra Heilbrigðisvísindabókasafns Landspítala og Háskóla Íslands.
Heilbrigðisvísindabókasafnið heyrir undir Vísindadeild Landspítala og þjónar bæði klínískri starfsemi sem og vísindastarfsemi. Safnið þjónar starfsfólki Landspítala, kennurum og nemendum Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Verkefnastjóri hefur yfirumsjón með allri þjónustu og starfsemi safnsins og er faglegur leiðtogi starfseminnar.
Vísindadeild tilheyrir skrifstofu forstjóra Landspítala. Landspítali er háskólasjúkrahús og gegnir veigamiklu hlutverki í því að afla nýrrar þekkingar í heilbrigðisvísindum. Þekkingarleit og þróun tækni eru forsendur framfara og þess að spítalinn geti veitt þjónustu í hæsta gæðaflokki.
Starfið er laust samkvæmt samkomulagi og unnið er í dagvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggur starfsemi safnsins
Skipuleggur og útdeilir verkefnum og hefur yfirumsjón með þeim fjölmörgu verkþáttum sem sinnt er á safninu
Leiðir þróun þjónustunnar
Sér um samninga og samskipti við erlenda útgefendur og birgja
Fulltrúi í stjórnarnefnd Landsaðgangs
Sinnir samstarfi við önnur háskólabókasöfn og stofnanir
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í bókasafns- og upplýsingafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Metnaður og framsýni til að leiða starfsemi bókasafnsins til framtíðar í umhverfi sem er í sífelldri þróun
Starfsreynsla á bókasafni innan heilbrigðisvísinda er kostur
Góð samskiptahæfni
Reynsla af samningagerð er kostur
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisvísindi, verkefnastjóri, bókasafn
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Magnús Gottfreðsson
Tölvupóstur: magnusgo@landspitali.is
Anna Sigríður Guðnadóttir
Tölvupóstur: annasgu@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri á Heilbrigðisvísindabókasafni
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.02.2026
Umsóknarfrestur
23.02.2026