Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur í Barnahúsi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.12.2025

Umsóknarfrestur

15.12.2025

Sálfræðingur í Barnahúsi

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir eftir öflugum sálfræðingi til starfa í Barnahús til þess að vinna með börnum og unglingum sem eru þolendur ofbeldis og fjölskyldum þeirra.

Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt eða orðið vitni að kynferðisofbeldi, líkamlegu ofbeldi og/eða heimilisofbeldi. Barnahús hefur verið leiðandi í þjónustu við börn, þróun vandaðra vinnubragða og innleiðingu gagnreyndra aðferða. Þjónusta Barnahúss nær til barna um allt land og því krefst starfið ferðalaga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Meðferðarviðtöl við börn og unglinga sem hafa sætt ofbeldi og fjölskyldur þeirra.

  • Rannsóknarviðtöl við börn og unglinga.

  • Ráðgjöf og fræðsla til barnaverndarþjónustu.

  • Skýrslu- og vottorðaskrif.

  • Þátttaka í kynningarstarfi á starfsemi Barnahúss.

  • Þátttaka í öðrum verkefnum í samráði við forstöðumann Barnahúss.

Hæfniskröfur

  • Sálfræðingur með löggildingu á Íslandi er skilyrði.

  • Reynsla á sviði meðferðar barna er skilyrði.

  • Þekking og reynsla af vinnu með þolendum ofbeldis og/eða áfallameðferð.

  • Reynsla af vinnu með fjölskyldum og barnaverndarstarfi.

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð vinnubrögð.

  • Mikilvægt er að hafa góða samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila.

  • Mikilvægt er að geta starfað vel undir álagi í lengri eða skemmri tíma.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði og önnur tungumálakunnátta er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um starfið gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofan aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.

Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfniskröfur sem gerðar eru. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Geirný Sigurðardóttir

Tölvupóstur: geirny.sigurdardottir@barnahus.is

Paola Cardenas

Tölvupóstur: paola.cardenas@barnahus.is

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur í Barnahúsi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.12.2025

Umsóknarfrestur

15.12.2025