
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðjúnkt í lífefnafræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
01.12.2025
Umsóknarfrestur
12.12.2025
Aðjúnkt í lífefnafræði
Laust er til umsóknar, tímabundið til eins árs, 70% starf aðjúnkts við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Starfið felur í sér kennslu og rannsóknir í lífefnafræði. Starfsskyldur aðjúnktsins skiptast í 65% kennslu, 31% rannsóknir og 4% stjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón og kennsla námskeiðs í Lífefnafræði 3 og þátttaka í öðrum námskeiðum, s.s. Lífefnafræði 1
Leiðsögn í lokaverkefnum meistara- og doktorsnema
Þátttaka í rannsóknaverkefnum og styrkjasókn innan námsleiðarinnar
Þátttaka í tilfallandi verkefnum og stjórnsýslu innan námsleiðarinnar og Verkfræði- og náttúruvísindasviðs
Hæfniskröfur
Doktorspróf í lífefnafræði
Reynsla af kennslu á háskólastigi
Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2026.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 12.12.2025
Nánari upplýsingar veitir
Snæbjörn Pálsson
Tölvupóstur: snaebj@hi.is
Zophonías Oddur Jónsson
Tölvupóstur: zjons@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðjúnkt í lífefnafræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
01.12.2025
Umsóknarfrestur
12.12.2025