
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf á dag- og göngudeild augnlækninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-80%
Starf skráð
01.12.2025
Umsóknarfrestur
11.12.2025
Starf á dag- og göngudeild augnlækninga
Við óskum eftir að ráða sérhæfðan starfsmann í 80% starf á göngudeild augnsjúkdóma á Eiríksgötu 5.Göngudeildin er miðstöð augnsjúkdóma í landinu og skiptist í göngudeild, dagdeild og skurðstofur. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólk. Starfið er laust 1. janúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Í boði er:
Fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf
Einstaklingsmiðuð starfsþjálfun
Starfsþróun með skipulagðri fræðslu
Sérhæft starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og þverfaglegt samstarf
Dagvinna, allt að 80% starfshlutfall.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með verkfærum deildarinnar
Umsjón með lager deildar og vörupantanir
Umsjón með daglegu skipulagi, vörumóttöku og umgengni á lager
Sótthreinsun og pökkun sérhæfðra áhalda
Samskipti og samvinna við birgðastöð og birgja
Vörupantanir og frágangur
Vinna í tölvukerfum
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Stúdentspróf eða annað nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi
Faglegur metnaður
Góð tölvukunnátta
Góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót, lipurð og sveigjanleiki
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Stundvísi
Hæfni til að vinna í teymi
Góð íslenskukunnátta er áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, sótthreinsitæknir
Íslenskukunnátta: íslenska 3/5
Staðsetning: Eiríksgata, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er -80%
Umsóknarfrestur er til og með 11.12.2025
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf á dag- og göngudeild augnlækninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-80%
Starf skráð
01.12.2025
Umsóknarfrestur
11.12.2025