Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í þjóðfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

11.12.2025

Aðjúnkt í þjóðfræði

Laust er til umsóknar 70% starf aðjúnkts, tímabundið til tveggja ára, við námsbraut í þjóðfræði við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands. Hlutverk aðjúnktsins er að hafa umsjón með og kenna inngangsnámskeið í þjóðfræði og sinna leiðbeiningu í lokaverkefnum. Starfsskyldur aðjúnktsins miðast við að 90% séu kennsla og prófavinna og 10% stjórnun í formi þátttöku í þróun náms á sviði þjóðfræði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla skyldunámskeiða í þjóðfræði, þ.m.t. Inngangur að þjóðfræði og Söfnun þjóðfræða

  • Leiðbeining grunn- og framhaldsnema í þjóðfræði

  • Þátttaka í þróun náms á sviði þjóðfræði

  • Að efla samtal við samfélagið í gegnum rannsóknir eða með öðrum hætti

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í þjóðfræði

  • Reynsla af kennslu á háskólastigi og hæfni til að miðla þekkingu kostur

  • Æskilegt er að umsækjandi hafi birt fræðigreinar á sviði þjóðfræði

  • Frumkvæði, áræðni og sjálfstæð vinnubrögð

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  1. Ferilskrá með upplýsingum um umsagnaraðila

  2. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur

  3. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautarinnar.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands. Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 70%

Umsóknarfrestur er til og með 11.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Dröfn Whitehead

Tölvupóstur: gdw@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í þjóðfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70%

Starf skráð

01.12.2025

Umsóknarfrestur

11.12.2025