
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar og starfsfólk í aðhlynningu á hjúkrunardeildir - HSN Sauðárkrókur
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
04.11.2025
Umsóknarfrestur
24.11.2025
Sjúkraliðar og starfsfólk í aðhlynningu á hjúkrunardeildir - HSN Sauðárkrókur
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir sjúkraliðum og öðru starfsfólki við aðhlynningu á hjúkrunardeildir. Ráðningartími er skv. samkomulagi en í boði er bæði tímabundin og ótímabundin störf. Starfshlutfall er skv. samkomulagi.
Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.
Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Þátttaka í teymisvinnu
Önnur tilfallandi störf skv. beiðni næsta stjórnanda
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi ef við á
Íslenskukunnátta skilyrði
Reynsla er kostur en ekki skilyrði
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun
Gott orðspor og hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá á íslensku, kynningarbréf og afrit af starfsleyfi sjúkraliða ef við á. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorgi.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing
HSN hefur hlotið jafnlaunavottun og fengið heimild til að nota jafnlaunamerki Jafnréttisstofu.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.11.2025
Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is
Sími: 432 4220

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar og starfsfólk í aðhlynningu á hjúkrunardeildir - HSN Sauðárkrókur
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
04.11.2025
Umsóknarfrestur
24.11.2025