Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri Vatnajökulsþjóðgarðs
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.11.2025
Umsóknarfrestur
13.11.2025
Verkefnisstjóri Vatnajökulsþjóðgarðs
Náttúruverndarstofnun leitar að öflugum og lausnamiðuðum verkefnisstjóra til að leiða samræmingar- og þróunarverkefni innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Starfið felur í sér víðtækt samstarf við þjóðgarðsverði, svæðisstjórn og aðra hagaðila með það að markmiði að efla starfsemi þjóðgarðsins og tryggja samræmi og gæði í rekstri og náttúruvernd.
Verkefnisstjóri starfar í nánu samstarfi við þjóðgarðsverði á öllum svæðum Vatnajökulsþjóðgarðs og aðra stjórnendur í stofnuninni. Æskilegt er að starfstöð verkefnastjóra sé á einni af meginstarfsstöðvum Vatnajökulsþjóðgarðs sem eru staðsettar á Höfn í Hornafirði, í Skaftafelli, á Kirkjubæjarklaustri, í Mývatnssveit, Ásbyrgi og Fellabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningur við starf svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs, m.a. undirbúningur, umsjón og úrvinnsla funda í samstarfi við þjóðgarðsverði og aðra stjórnendur.
Tengiliður milli þjóðgarðsvarða og annarra stjórnenda Náttúruverndarstofnunar við svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.
Yfirsýn yfir starfsemi þjóðgarðsins og samstarf þvert á skipulagseiningar varðandi málefni þjóðgarðsins.
Samhæfing og stuðningur við verkefni þjóðgarðsvarða á svæðum Vatnajökulsþjóðgarðs í samstarfi við svæðisstjórn og aðra stjórnendur í Náttúruverndarstofnun.
Leiða þverfagleg verkefni og stuðla að samstarfi við tengiliði á svæðum þjóðgarðsins ásamt samstarfi við önnur friðlýst svæði.
Þátttaka í þróun og innleiðingu verklagsreglna og gæðaferla.
Umsjón með samskiptum og upplýsingamiðlun í tengslum við verkefni Vatnajökulsþjóðgarðs.
Þátttaka í stefnumótun og innleiðingu stefnu fyrir þjóðgarðinn, þar á meðal markmiða í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu eða hæfni til að leiða verkefni og teymi er skilyrði.
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
Mjög góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Leiðtogahæfni og sveigjanleiki í fjölbreyttum verkefnum.
Þekking á náttúruvernd og opinberri stjórnsýslu er kostur.
Reynsla af verkefna- eða skjalastjórnunarkerfum er kostur.
Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 þegar starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og sá hluti Umhverfisstofnunar sem sneri að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun sameinuðust í nýja stofnun. Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar.
Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið fylgja með umsókninni.Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu verður tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2025
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri Vatnajökulsþjóðgarðs
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.11.2025
Umsóknarfrestur
13.11.2025