Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðinemi á skurðlækningadeild - spennandi tækifæri!
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.07.2025
Umsóknarfrestur
29.07.2025
Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðinemi á skurðlækningadeild - spennandi tækifæri!
Viltu vera hluti af framsæknu og samhentu teymi?
Við leitum að hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundna stöðu á skurðlækningadeild á Sjúkrahúsinu á Akureyri, einnig kemur til greina að ráða hjúkrunarfræðinema sem hafa lokið þriðja ári í námi. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum og er staðan laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Á skurðlækningadeild starfar samheldið og metnaðarfullt þerfaglegt teymi í lærdómsríku og krefjandi starfsumhverfi. Áhersla er lögð á faglegan vöxt, góða samvinnu og öfuga liðsheild. Starfið býður upp á fjölbreytt tækifæri til byggja upp sterka faglega þekkingu, efla sjálfstæð vinnubrögð og taka virkan þátt í þróun deildarinnar.
Afhverju að velja skurðlækningadeild?
Tækifæri til að byggja upp öfluga faglega þekkingu, þróa sjálfstæð vinnubrögð og faglega ábyrgð
Markviss einstaklingsbundin aðlögðun með reyndum hjúkrunarfræðingum
Fjölbreytt og spennandi starfsumhverfi í samheldnu og öflugu teymi
Mikil áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju starfsfólki og veita einstaklingsbundna aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Starfið hentar bæði hjúkrunarfræðingum sem búa yfir þekkingu og reynslu, nýútskrifuðum sem og hjúkrunarfræðinemum sem lokið hafa þriðja ári í námi.
Næsti yfirmaður er Bryndís María Davíðsdóttir deildarstjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum
Vera virkur þátttakandi í þróun deildarinnar
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Fullgilt hjúkrunarpróf og gilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur (á ekki við ef um hjúkrunarnema er að ræða)
Góð samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Faglegur metnaður og áhugi
Góð íslenskukunnátta
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.07.2025
Nánari upplýsingar veitir
Bryndís María Davíðsdóttir, bryndisd@sak.is
Sími: 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðinemi á skurðlækningadeild - spennandi tækifæri!
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
04.07.2025
Umsóknarfrestur
29.07.2025