Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

06.06.2025

Umsóknarfrestur

16.06.2025

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma

Hefur þú áhuga á að starfa í umhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, starfsþróun, teymisvinnu og góðan starfsanda?

Legudeild geðrofssjúkdóma óskar eftir áhugasömum hjúkrunarfræðingi sem vill efla sig á sviði geðhjúkrunar. Starfið hentar vel þeim sem brenna fyrir leiðtogahæfni, samskiptatækni, öryggi og fjölbreytta vinnu. Áhersla er lögð á notendamiðaða þjónustu og góðan starfsanda. Starfshlutfall er 80-100%, möguleiki er á sérstöku næturvakta starfshlufalli. Starfið er laust frá 11. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi.

Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 rými ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virknimeðferð, fræðslu og lyfjameðferð. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm. Deildin státar af góðri þverfaglegri teymisvinnu og er sérstök áhersla lögð á að veita aðstandendum stuðning og fræðslu.

Það eru spennandi tímar í geðhjúkrun og mikil áhersla er á eflingu hjúkrunar í þjónustunni. Hjúkrunarfræðingum, nýútskrifuðum sem og reyndum, gefst kostur á sérhæfðu starfsþróunarári með öflugri faghandleiðslu með það að markmiði að dýpka þekkingu sína á geðhjúkrun og byggja upp frekari meðferðarhæfni. Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun á deild undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.

Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á hjúkrun á deild

  • Hefur yfirsýn yfir hjúkrunarþarfir og öryggisþætti, skipuleggur og veitir viðeigandi hjúkrunarmeðferð

  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi

  • Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur þeirra

  • Kennsla, þjálfun og stuðningur við nema og aðra starfsmenn

  • Virk þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar

  • Stuðla að góðum samstarfsanda

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Framhaldsnám í geðhjúkrun er kostur

  • Faglegur metnaður og áhugi á geðhjúkrun

  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi

  • Jákvætt hugarfar og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Íslenska 4/5, enska 3/5

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Guðfinna Betty Hilmarsdóttir, gudfinna@landspitali.is

Sími: 824-6022

Hrafnhildur Benediktsdóttir, hrafnhbe@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

06.06.2025

Umsóknarfrestur

16.06.2025