
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Kennslustjóri sérnáms í ofnæmis- og ónæmislækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
10%
Starf skráð
06.06.2025
Umsóknarfrestur
27.06.2025
Kennslustjóri sérnáms í ofnæmis- og ónæmislækningum
Laust er til umsóknar hlutastarf kennslustjóra sérnáms í ofnæmis- og ónæmislækningum við Landspítala frá 1. júlí 2025 eða skv. samkomulagi. Kennslustjóri er leiðtogi og fyrirmynd og ber ábyrgð á innihaldi, gæðum og framkvæmd sérnáms í ofnæmis- og ónæmislækningum auk víðtækrar, leiðandi aðkomu að starfsmannamálum sérnámslækna. Meginhlutverk er að tryggja öflugt sérnám og stuðla þannig að árangursríkum lækningum, góðri þjónustu og öryggi sjúklinga ásamt viðeigandi mönnun greinarinnar til framtíðar. Þá gegnir kennslustjóri einnig mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og framkvæmd vísindastarfa og umbótavinnu.
Kennslustjóri vinnur í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðulækna, yfirlækna, umsjónarsérnámslækna og annað samstarfsfólk. Kennslustjóri hefur aðgang að skrifstofuaðstöðu innan ofnæmis- og ónæmislækninga og skrifstofu sérnáms og starfar náið með skrifstofustjóra og verkefnastjórum. Næsti yfirmaður er yfirlæknir sérnáms. Lesa má nánar um hlutverk kennslustjóra í reglugerð 856/2023.
Leitað er eftir sérfræðilækni í ofnæmis- og ónæmislækningum með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu sérnámsins. Um er að ræða 10% starfshlutfall.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á innihaldi og framkvæmd sérnáms í viðeigandi sérgrein í samræmi við marklýsingu og alþjóðlega gæðastaðla, auk viðhalds á marklýsingu í samvinnu við kennsluráð
Að leiða samræmt ráðningaferli í sérnámi tvisvar á ári
Að leiða kennsluráð sérnáms í ofnæmis- og ónæmislækningum
Víðtæk leiðandi aðkoma að starfsmannamálum sérnámslækna, í samráði við stjórnendur með þríþætta ábyrgð
Skipulag og útgáfa námsblokka sérnámslækna í samræmi við marklýsingu
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í ofnæmis- og ónæmislækningum
Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar, auk frumkvæðis og metnaðar til að ná árangri
Áhugi og reynsla af kennslu og klínískri þjálfun lækna
Afburðahæfni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og samvinnu við samstarfsfólk
Skilyrði er að kennslustjóri hafi klínískar starfsskyldur við starfseiningu sem samþykkt er til sérnáms af mats- og hæfisnefnd í ofnæmis- og ónæmislækningum
Kennslustjóri þarf að hafa lokið viðeigandi þjálfun í handleiðslu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðilar
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af námsgögnum og starfsleyfum ef umsækjandi er ekki þegar í starfi á Landspítala þar sem gögnin liggja fyrir.
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
Yfirlit yfir birtar vísindagreinar (eða í ritrýni) sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur sem uppfylla hæfnikröfur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Starfshlutfall er 10%
Umsóknarfrestur er til og með 27.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Dís Óskarsdóttir, margdis@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Kennslustjóri sérnáms í ofnæmis- og ónæmislækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
10%
Starf skráð
06.06.2025
Umsóknarfrestur
27.06.2025