Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir við heilsugæslustöðina í Borgarnesi

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.05.2025

Umsóknarfrestur

30.05.2025

Læknir við heilsugæslustöðina í Borgarnesi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands auglýsir eftir stöðu læknis við heilsugæslustöðina í Borgarnesi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Á heilsugæslustöðinn í Borgarnesi starfa að jafnaði fjórir læknar. Þjónustusvæðið er víðfeðmt með um 4.000 íbúum.

Starfsemin er fjölbreytt. Veitt er almenn heilsugæsluþjónusta með sjúklingamóttöku, ungbarnavernd, mæðravernd og skólaheilsugæsla. Teymisþjónusta læknis og hjúkrunarfræðings er um bráðatilvik að deginum til á virkum dögum. Viðbragðsvakt læknis er utan dagvinnutíma virka daga og á helgum.

Hæfniskröfur

Starfsleyfi Embættis landlæknis.

Sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum er æskileg eða reynsla af stöfum í heilsugæslu.

Lögð er áhersla á faglegan metnað, teymisvinnu, jákvæðni og sveigjanleika.

Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum er skilyrði.

Góðrar íslenskukunnáttu er krafist.

Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum, sem teljast ekki uppfylla framangreind skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms og starfsferilskrá, kyningarbréf auk staðfests afrits af starfsleyfi Embættis landlæknis. Sótt er um á www.starfatorg.is, www.alfred.is og/eða www.hve.is

Starfshlutfall er 100% eða eftir nánara samkomulagi.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.05.2025

Nánari upplýsingar veitir

Indriði Einar Reynisson, indridi.reynisson@gmail.com

Sími: 432-1430

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir við heilsugæslustöðina í Borgarnesi

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.05.2025

Umsóknarfrestur

30.05.2025