Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.05.2025
Umsóknarfrestur
26.05.2025
Sérfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu heilbrigðisþjónustu frá 1. júlí nk. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið er auglýst tímabundið til eins árs með möguleika á fastráðningu í framhaldinu. Verksvið skrifstofu heilbrigðisþjónustu er öll veiting heilbrigðisþjónustu, þ.e. yfirsýn og trygging samfellu með veitingu heilbrigðisþjónustu og samhæfingu heilsueflingar yfir öll þjónustustig. Auk þess að halda utan um forvarnir, fræðslu og hvers kyns meðferðir til að viðhalda eða bæta heilsu sem og að tryggja gerð viðbragðsáætlana í heilbrigðisþjónustu. Í framangreindu felst m.a. stefnumótun, áætlanagerð, innleiðing og eftirfylgni áætlana, skipulag, sérhæfing og verkaskipting.
Skipulag skrifstofunnar byggir á þjónustuflokkum og snýr auglýst starf fyrst og fremst að heilbrigðisþjónustu við aldraða og langveika innan sem utan stofnana.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð á sviði heilbrigðisþjónustu.
Eftirfylgni aðgerðaáætlana á sviði heilbrigðisþjónustu.
Samskipti við stofnanir heilbrigðisráðuneytis og þjónustuveitendur.
Svörun stjórnsýsluerinda.
Heilsuvernd í forvarnarskyni og á fyrsta og öðru stigi.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu og stefnumótunar er æskileg.
Þekking og reynsla af starfssviði öldrunarþjónustu.
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Góð tölvukunnátta.
Metnaður og vilji til að ná árangri.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt hæfni í verkefnastjórnun.
Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Góð kunnátta í ensku er nauðsynleg og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2025
Nánari upplýsingar veitir
Guðlaug Einarsdóttir, gudlaug.einarsdottir@hrn.is
Sími: 545 8700
Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á skrifstofu heilbrigðisþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.05.2025
Umsóknarfrestur
26.05.2025