Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild Barnaspítala Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

09.05.2025

Umsóknarfrestur

28.05.2025

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild Barnaspítala Hringsins

Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í krabbameins- og blóðsjúkdómateymi á göngudeild Barnaspítala Hringsins. Starfshlutfall er 60-100% og er ráðið í starfið frá 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.

Starfið felur m.a. í sér fræðslu, meðferð, stuðning og ráðgjöf við börn og ungmenni með krabbamein/ blóðsjúkdóma og fjölskyldur þeirra, þróun verkferla, gæðavinnu og rannsóknir.

Í boði er áhugavert, fjölbreytt og krefjandi starf með fjölþættum viðfangsefnum. Unnið er í þverfaglegu teymi. Spennandi tækifæri fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á fjölskylduhjúkrun, þróun og eflingu hjúkrunar barna og ungmenna með krabbamein/ blóðsjúkdóma og fjölskyldna þeirra. Góð aðlögun er í boði.

Barnaspítali Hringsins hefur forystu í heilbrigðisþjónustu við börn og unglinga á Íslandi. Þar er veitt fjölbreytileg heilbrigðisþjónusta sem krefst mikillar sérhæfingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna á göngudeild, m.a. í formi, krabbameinsmeðferða, fjölskylduviðtala, fræðslu, stuðnings og þróun þjónustu við börn og ungmenni með krabbamein/ blóðsjúkdóma og fjölskyldur þeirra

  • Þekkingarþróun og þátttaka í gæðastarfi og rannsóknum

  • Fræðsla utan spítala eftir þörfum s.s. til fagfélaga og skóla

  • Almenn störf á göngudeild

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Framhalds- eða viðbótarmenntun er æskileg

  • Reynsla af barnahjúkrun er æskileg

  • Reynsla af hjúkrun sjúklinga með krabbamein

  • Þekking á öruggri meðferð krabbameinslyfja

  • Góð samskiptafærni

  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og færni til að vinna í teymi

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.05.2025

Nánari upplýsingar veitir

Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir, johahjor@landspitali.is

Sími: 824-1202

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild Barnaspítala Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

09.05.2025

Umsóknarfrestur

28.05.2025