Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar - sjúkradeild
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
40-100%
Starf skráð
15.04.2025
Umsóknarfrestur
28.04.2025
Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar - sjúkradeild
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga/nema í sumarafleysingar á sjúkradeild. Um er að ræða vaktavinnu. Möguleiki er á framlengingu. Hægt er að hefja störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar og nemar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi eða að hafa lokið þriggja ára námi í hjúkrunarfræði
Faglegur metnaður og vandvirkni
Framúrskarandi samskiptahæfni
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Hlýtt og jákvætt viðmót
Starfsreynsla er kostur
Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi og staðfesting á námi fyrir nema. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Sævarsdóttir, bryndis.saevarsdottir@hss.is
Sími: 4220500
Ása Hrund Sigurjónsdóttir, asa.h.sigurjonsdottir@hss.is
Sími: 4220500
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar - sjúkradeild
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
40-100%
Starf skráð
15.04.2025
Umsóknarfrestur
28.04.2025