
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra - Húsavík
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.04.2025
Umsóknarfrestur
30.04.2025
Sumarafleysingar - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra - Húsavík
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra óskar eftir að ráða lögreglumann í sumarafleysingar í almennri löggæslu á starfsstöð embættisins á Húsavík.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra er nútímaleg og framsækin stofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megináhersla er lögð á að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni. Áhersla er á traust og gagnsæi í samskiptum, jafnrétti, starfsánægju og heilbrigðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í samræmi við reglugerð nr. 1051/2006 um starfstig innan lögreglu; m.a. halda uppi lögum og reglu í samræmi við lög, reglur og fyrirmæli, tryggja réttaröryggi borgara með störfum sínum og framkomu, greiða götu þeirra eftir því sem við á og aðstoða þegar hætta steðjar að eða slys ber að höndum, sinna verkum sem lögreglustjóri felur honum s.s. á sviði forvarna og annars.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Þó er heimilt að ráða ófagmenntað fólk til tímabundinna afleysingastarfa ef ekki sækja um fagmenntaðir einstaklingar. Þeir sem ekki hafa áður starfað í lögreglu verða að vera reiðubúnir að sitja nýliðanámskeið og standast þrekpróf og læknisskoðun.
Reynsla af starfi við löggæslu er kostur
Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp
Sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol
Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
Lausnamiðað og jákvætt viðhorf
Frumkvæði og drifkraftur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, ásamt afritum af prófskírteinum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Umsóknir sem berast að umsóknarfresti liðnum verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir.
Um vaktavinnu er að ræða með bakvaktaskyldu og búseta á staðnum því nauðsynleg á meðan á bakvöktum stendur.
Vakin er athygli á að engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að viðkomandi varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá eða málaskrá lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Lögreglustjóri leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Bergur Jónsson, bergur.jonsson@logreglan.is
Sími: 444-2800
Jóhannes Sigfússon, js02@logreglan.is
Sími: 444-2800

Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra - Húsavík
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.04.2025
Umsóknarfrestur
30.04.2025