Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Næringarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
15.04.2025
Umsóknarfrestur
30.04.2025
Næringarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Viltu taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar?
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða næringarfræðing til starfa ótímabundið í 50 % starf á stofnunina. Um er að ræða dagvinnu og er starfið laust frá 1. september eða samkvæmt samkomulagi.
Hér er um að ræða tækifæri fyrir framsækinn og metnaðarfullan næringarfræðing sem hefur áhuga að vinna að umbótum og framþróun í þverfaglegum teymum til að efla þjónustu við skjólstæðinga.
Starfsemi heilsugæslunnar í Reykjanesbæ er fjölbreytt, hjúkrunarmóttaka, skólahjúkrun, mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsueflandi móttaka.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Næringarfræðingur hefur umsjón með næringarmeðferð og ráðgjöf til skjólstæðinga stofnunarinnar
Hann er þátttakandi í þverfaglegri teymisvinnu, meðal annars í sykursýkismóttöku og öðrum heilsueflandi móttökum
Sinnir fræðslu og hefur umsjón með fræðsluefni
Næringarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn og siðareglum og markmiðum stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Löggilding samkvæmt reglugerð sem og gilt starfsleyfi
Faglegur metnaður
Góð samskiptahæfni
Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
Hlýtt og jákvætt viðmót
Klínísk reynsla æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Andrea Klara Hauksdóttir, andrea.k.hauksdottir@hss.is
Sími: 4220500
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Næringarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
15.04.2025
Umsóknarfrestur
30.04.2025