Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri leikmyndaframleiðslu í Þjóðleikhúsinu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.04.2025

Umsóknarfrestur

12.05.2025

Teymisstjóri leikmyndaframleiðslu í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu og setur upp leiksýningar sem hrífa áhorfendur og skemmta, vekja til umhugsunar, endurspegla fjölbreytileika mannlífsins og veita innblástur. Þjóðleikhúsið er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfsfólk leggur metnað sinn í að skapa jarðveg fyrir nýsköpun og framþróun í sviðslistum og bjóða upp á framúrskarandi leiksýningar.

Þjóðleikhúsið leitar að reynslumiklum, lausnamiðuðum, metnaðarfullum og drífandi leiðtoga með brennandi áhuga á starfsemi leikhúsa sem hefur metnað til að láta til sín taka, bæta starfsumhverfi sitt og axla ábyrgð. Starfið felur í sér framleiðslustjórn fyrir framleiðslu leikmynda á öllum sviðum leikhússins. Teymisstjóri tekur við teikningum og hugmyndum frá leikmyndahöfundum og leiðir hóp starfsfólks á smíðaverkstæði við úrvinnslu og útfærslu á þeim teikningum/hugmyndum. Teymisstjóri starfar með stjórnendum leikhússins að því að tryggja hámarks gæði og hagkvæmni í framleiðslu leikverka leikhússins ásamt því að framfylgja umhverfisstefnu leikhússins.

Þjóðleikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður þar sem fjölbreyttur og samheldinn hópur starfar. Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og boðið er upp á hlunnindi svo sem samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Taka við hugmyndum og teikningum frá leikmyndahöfundum og vera í samtali við þau um efnisval, tæknilegar útfærslur og vinnsluaðferðir

  • Stýra starfi framleiðsluteymis og stjórna ferli og samhæfingu við önnur teymi og deildir vegna framleiðslu leikverka á öllum leiksviðum leikhússins

  • Vinna að útfærslu við framleiðslu og smíði leikmynda

  • Vinna náið með tæknistjóra á sviði

  • Útbúa smíða- og tækniteikningar eða staðfesta slíkar frá hönnuðum m.t.t tækja- og tæknibúnaðar hússins, annarra leikmynda á tilteknu sviði, skiptinga og geymslupláss og öryggiskrafna o.s.frv.

  • Gæta þess að rekstur framleiðsluteymis sé ávallt í samræmi við samþykktar forsendur og áætlanir

  • Sjá til þess að framleiðsluferli og tímaáætlanir í framleiðslu leikmynda haldist.

  • Stuðla að því að efni og aðföng séu vel nýtt

  • Leggja sig fram við að kolefnisfótspor við framleiðslu leikmynda sé haldið í lágmarki og sé í samræmi við umhverfisstefnu leikhússins

  • Sjá um að skipuleggja vinnutíma starfsfólks við framleiðslu leikmynda og nýta hann á sem hagkvæmastan hátt

  • Tryggja að öryggi, frágangur og umgengni framleiðsluteymis og vinnusvæði þess sé til fyrirmyndar

Hæfniskröfur

  • Þekking og reynsla af starfi í leikhúsi og framleiðslu leikmynda

  • Mikil reynsla af hverskyns smíðavinnu og þekking á öryggiskröfum

  • Reynsla af stjórnun með mannaforráð

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Mjög góð skipulagshæfni

  • Hæfni til að leysa tæknilega flókin verkefni, úthluta verkefnum og halda yfirsýn

  • Góð almenn tölvukunnátta: Outlook, Excel, Word.

  • Yfirgripsmikil þekking og kunnátta á algengum teikniforritum eins og Sketchup og Auto CAD

  • Hæfni til samvinnu í fjölbreyttu teymi þvert á deildir þar sem sveigjanleiki og aðlögunarhæfni er mikilvægur eiginleiki

  • Hugmyndaauðgi, frumkvæði og áræðni ásamt mikilli hæfni í mannlegum samskiptum

  • Gott vald á íslensku og/eða ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

  • Vinnutími er á dagvinnutíma alla virka daga en gert ráð fyrir sveigjanlegum vinnutíma þegar leikmyndir fara á svið og við fyrstu skiptingar hverrar leikmyndar á sviði

  • Næsti yfirmaður er forstöðumaður skipulags, framleiðslu og ferla

  • Við ráðningu í störf í Þjóðleikhúsinu er tekið mið af jafnréttisáætlun leikhússins

  • Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst en eigi síðar en 15. ágúst 2025.

  • Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir því hvernig hann uppfyllir hæfnikröfur auglýsingar

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila frá fyrri störfum

Leikhúsið áskilur sér rétt til að ráða engan uppfylli enginn umsækjandi kröfur.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.05.2025

Nánari upplýsingar veitir

Tinna Lind Gunnarsdóttir, tinna.l.gunnarsdottir@leikhusid.is

Sími: 5851212

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri leikmyndaframleiðslu í Þjóðleikhúsinu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.04.2025

Umsóknarfrestur

12.05.2025