Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í rekstri og fjármálum - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.03.2025

Umsóknarfrestur

24.03.2025

Sérfræðingur í rekstri og fjármálum - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra leitar að öflugum einstaklingi í spennandi og krefjandi starf á skrifstofu lögreglustjóra, með starfsstöð á Akureyri. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið frá 1. apríl 2025.

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra er nútímaleg og framsækin stofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megináhersla er lögð á að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni. Áhersla er á traust og gagnsæi í samskiptum, jafnrétti, starfsánægju og heilbrigðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við gerð fjárhagsáætlunar og reikningshald

  • Greining, úrvinnsla og miðlun fjárhagsupplýsinga

  • Launavinnsla og skráningar í launakerfi

  • Umsjón með innkaupum og samningsgerð

  • Skjalastjórnun og vinnsla

  • Þróun verkferla og umbótavinnu

  • Umsjón með upplýsingatæknimálum og þróun þeirra

  • Umsjón með atvikaskráningum

  • Önnur tilfallandi verkefni sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni

Hæfniskröfur

Mikilvæg hæfni:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði

  • Framhaldsmenntun á sviði fjármála er kostur

  • Haldbær reynsla á sviði rekstrar og fjármála

  • Þekking á opinberum rekstri

  • Þekking á Orra fjárhagskerfi er kostur

  • Þekking á MTP tímastjórnunarkerfi er kostur

  • Góð þekking á upplýsingatækniumhverfi og áhugi á þróun á því sviði

  • Mjög góð tölvukunnátta, þ.m.t. Excel, Power BI og annar Microsoft hugbúnaður

  • Þekking og reynsla af skjalastjórnun

  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

  • Önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi

Mikilvægir eiginleikar:

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð

  • Greiningarhæfni og gott talnalæsi

  • Lausnamiðað og jákvætt viðhorf

  • Sveigjanleiki og gott álagsþol

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að vanda umsóknir sínar.

Engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Embættið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.03.2025

Nánari upplýsingar veitir

Bergur Jónsson, bergur.jonsson@logreglan.is

Sími: 444-2800

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í rekstri og fjármálum - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.03.2025

Umsóknarfrestur

24.03.2025