Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing - Sjúkraliðar í heimahjúkrun
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
40-80%
Starf skráð
13.03.2025
Umsóknarfrestur
24.03.2025
Sumarafleysing - Sjúkraliðar í heimahjúkrun
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða í sumarafleysingar í heimahjúkrun. Um er að ræða vaktavinnu á dag-, kvöld- og helgarvöktum. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum. Nemar sinna umönnun skjólstæðinga og öðrum störfum undir stjórn og í samvinnu við hjúkrunarfræðinga.
Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á teymisvinnu og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
Hæfniskröfur
Starfsleyfi sjúkraliða
Faglegur metnaður og áhugi á að vinna í heimahjúkrun
Framúrskarandi samskiptahæfni
Sjálfstæði í starfi
Jákvætt og hlýtt viðmót
Reynsla af heimahjúkrun æskileg
Hreint sakavottorð
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og staðfesting á starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfsmenn í heimahjúkrun þurfa að hafa bílpróf.
Starfshlutfall er 40-80%
Umsóknarfrestur er til og með 24.03.2025
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Blöndal, margret.blondal@hss.is
Sími: 4220500
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing - Sjúkraliðar í heimahjúkrun
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
40-80%
Starf skráð
13.03.2025
Umsóknarfrestur
24.03.2025