Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Fiskistofa óskar eftir að ráða starfsmann í eftirlit á veiðieftirlitssvið á Ísafirði
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.01.2025
Umsóknarfrestur
31.01.2025
Fiskistofa óskar eftir að ráða starfsmann í eftirlit á veiðieftirlitssvið á Ísafirði
Fiskistofa leitar að drífandi, lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga og reynslu af sjávarútvegi. Ef þú ert tilbúin/n að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í einni af mikilvægustu atvinnugrein landsins, gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Um Fiskistofu og starfsaðstöðu:Fiskistofa er stjórnsýslu og eftirlitsstofnun sem heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið og fer stofnunin með framkvæmd laga á sviði fiskveiðistjórnunar og lax og silungsveiða. Aðrar starfsstöðvar Fiskistofu eru á Akureyri, Hafnarfirði, Stykkishólmi og Vestmannaeyjum auk þess sem ný starfsstöð verður opnuð í Neskaupsstað í mars 2025.
Við leggjum ríka áherslu á stafrænar lausnir og nýsköpun, auk greininga og áhættumats til að bæta eftirlitsferla okkar og efla skilvirkni. Frekari upplýsingar um vinnustaðinn má nálgast á vefsíðu Fiskistofu www.fiskistofa.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlit á sjó: Eftirlitsferðir með skipum af öllum stærðum og gerðum sem leyfi hafa til veiða í efnahagslögsögunni, þar á meðal ein til tvær sjóferðir á vinnsluskipum á ári. Í eftirlitsferðum á sjó er meðal annars fylgst með brottkasti, framkvæmdar lengdarmælingar á fiski og öðrum sjávarlífverum. Fylgt eftir skráningu í afladagbók og tillögur gerðar um lokanir veiðisvæða.
Eftirlit í landi: Eftirlit með löndun og vigtun afla á hafnarvog og hjá vigtunarleyfishöfum. Lengdarmælingar og skráning gagna. Úttekt á afurðum vinnsluskipa ásamt stjórnun fjarstýrðra loftfara
Skrifstofustörf: Skýrslugerð, skráning gagna og vinnsla upplýsinga vegna brotamála.
Önnur verkefni á starfssviði eftirlitsins eru meðal annars verkefni í lax og silungsveiði í sjó og malartekju í veiðivötnum
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi.
Haldgóð reynsla og þekking á sjávarútvegi.
Þekking á sjómennsku kostur.
Góð tölvukunnátta og færni í gagnagreiningu.
Góð íslenskukunnátta.
Góð enskukunnátta.
Greiningarhæfni, nákvæmni og fagmennska.
Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni í teymisvinnu.
Líkamleg og andleg geta til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
Hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsóknarfrestur og ferli:
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir hæfni sinni í starfið. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknir gilda í sex mánuði og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli umsækjenda er vakin á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Fiskistofa áskilur sér rétt til að hætta við ráðningu í einstaka stöðu og/eða auglýsa að nýju.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Viðar Ólason, vidar.olason@fiskistofa.is
Sími: 5697900
Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Fiskistofa óskar eftir að ráða starfsmann í eftirlit á veiðieftirlitssvið á Ísafirði
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.01.2025
Umsóknarfrestur
31.01.2025