Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf - Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á heilsugæslu HSN Blönduósi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

10.01.2025

Umsóknarfrestur

03.02.2025

Sumarstörf - Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á heilsugæslu HSN Blönduósi

Heilbrigðisstofnun Norðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing/ hjúkrunarnema í sumarafleysingar á heilsugæsluna á Blönduósi. Ráðningartími er frá 15. maí til 31. ágúst 2025 eða samkvæmt samkomulagi. Við erum opin fyrir því að ráða hjúkrunarfræðinga til að vinna styttri lotur, valdar helgar eða í allt sumar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar. Verksvið og ábyrgð hjúkrunarfræðinema er í samræmi við námsframvindu.

Hæfniskröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi, staðfesting á námi fyrir nema

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorgi.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Með umsókn skal fylgja ferilskrá á íslensku, afrit af prófskírteini og íslenskt hjúkrunarleyfi. Einnig staðfesting á námi fyrir nema.

Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Ásdís H Arinbjörnsdóttir, asdis.arinbjarnardottir@hsn.is

Sími: 432 4100

Helga Margrét Jóhannesdóttir, helga.margret.johannesdottir@hsn.is

Sími: 432 4100

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf - Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi á heilsugæslu HSN Blönduósi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

10.01.2025

Umsóknarfrestur

03.02.2025