Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Þjóðgarðsvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.01.2025
Umsóknarfrestur
20.01.2025
Þjóðgarðsvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði
Náttúruverndarstofnun auglýsir starf þjóðgarðsvarðar í Snæfellsjökulsþjóðgarði laust til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi með mikla samskiptahæfni, þekkingu og áhuga á náttúruvernd og getu til að leiða starfsemi á svæðinu. Næsti yfirmaður þjóðgarðsvarðar er sviðsstjóri landvörslusviðs en auk þess felur starfið í sér náið samstarf við þjóðgarðsráð Snæfellsjökulsþjóðgarðs og annað starfsfólk Náttúruverndarstofnunar.
Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 og tekur stofnunin við starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og þeim hluta Umhverfisstofnunar er lýtur að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar og eftirliti á ofangreindum sviðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á rekstri Snæfellsjökulsþjóðgarðs og nærliggjandi náttúruverndarsvæða ásamt gestastofum þjóðgarðsins á Hellissandi og Malarrifi
Mannauðsstjórnun í þjóðgarðinum, s.s. ráðningar starfsmanna, starfsþróun, framkvæmd starfsmannasamtala og fleira í samstarfi við aðra stjórnendur stofnunarinnar
Samskipti og samvinna við hagsmunaaðila s.s. fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, skóla og íbúa á nærsvæðum þjóðgarðsins
Tryggja og viðhalda verndargildi þjóðgarðs og friðlýstra svæða og þeim markmiðum sem sett eru fram í stjórnunar- og verndaráætlunum
Þróun og nýsköpun hvað varðar þjónustu á svæðunum, öryggismál, náttúruvernd, uppbyggingu innviða og fleira
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af stjórnun, rekstri og/eða mannaforráðum
Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samstarfi
Brennandi áhugi á náttúruvernd
Þekking á starfsemi þjóðgarða og friðlýstra svæða er kostur
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er um starfið á Starfatorgi og skal umsóknum fylgja ítarlegt yfirlit um menntun og starfsferil ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Inga Dóra Hrólfsdóttir, inga.dora.hrolfsdottir@nattura.is
Sími: 6176605
Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Þjóðgarðsvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.01.2025
Umsóknarfrestur
20.01.2025