Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Þjóðgarð­urinn á Þingvöllum

Upplýsingar um starf

Starf

Verkamenn í sumarstörf 2025 - Þingvellir

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.01.2025

Umsóknarfrestur

28.02.2025

Verkamenn í sumarstörf 2025 - Þingvellir

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir sumarstörf verkamanna. Verkamenn sinna fjölbreyttum störfum í þjóðgarðinum við umferðarstýringu, viðhald, umhirðu og þrif. Starfstímabil er frá 14. maí til 1. september eða eftir samkomulagi. Um vaktavinnu er að ræða og þjóðgarðurinn útvegar farartæki frá fyrirfram ákveðnum stöðum innan höfuðborgarsvæðisins sem starfsfólk getur nýtt sér til að komast á starfsstöð.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þrif

  • Umferðarstýring

  • Umhirða og sláttur

  • Viðhald gönguleiða

  • Smærri viðhaldsverkefni

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Samskiptahæfni

  • Þjónustulund

  • Stundvísi

  • Verklagni

  • Ökuréttindi og hæfni til að aka bæði sjálf- og beinskiptum ökutækjum er skilyrði

  • Gott vald á íslensku og ensku

  • Geta til að vinna undir álagi innan sem utandyra

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn ásamt ferilskrá berist í gegnum starfatorg.is

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er elsti þjóðgarður landsins og hefur verið á heimsminjaskrá Unesco frá 2004. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er einn fjölmennasti ferðamannastaður landsins og því mjög lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem býður upp á fjölbreytt verkefni og krefjandi áskoranir á hverjum degi.

Umsókn getur gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Möguleiki er á tímabundinni framlengingu ráðningar.

Öll kyn eru hvött til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir, jona@thingvellir.is

Þjónustuaðili

Þjóðgarð­urinn á Þingvöllum

Upplýsingar um starf

Starf

Verkamenn í sumarstörf 2025 - Þingvellir

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.01.2025

Umsóknarfrestur

28.02.2025