Þjónustuaðili
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Upplýsingar um starf
Starf
Landverðir í fræðslu og miðlun sumarið 2025
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.01.2025
Umsóknarfrestur
28.02.2025
Landverðir í fræðslu og miðlun sumarið 2025
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir eftir landvörðum á sviði fræðslu í tímabundin störf frá 14. maí - 1. september eða eftir nánara samkomulagi. Störf landvarða hjá þjóðgarðinum á Þingvöllum eru fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi. Um vaktavinnu er að ræða og þjóðgarðurinn útvegar farartæki frá fyrirfram ákveðnum stöðum innan höfuðborgarsvæðisins sem starfsfólk getur nýtt sér til að komast á starfsstöð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Upplýsingagjöf, fræðsla og miðlun í gestastofu þjóðgarðsins á Haki
Miðlun og fræðsla í þinghelgi m.a. við Þingvallakirkju, Almannagjá sem og annars staðar í þjóðgarðinum
Þátttaka í gönguferðum og annarri skipulagðri dagskrá þjóðgarðsins í samstarfi við fræðslufulltrúa og þjóðgarðsvörð
Móttaka hópa og leiðsögn í samstarfi við fræðslufulltrúa og þjóðgarðsvörð
Umsjón, eftirlit og þrif í gestastofu þjóðgarðsins á Haki
Umsjón, eftirlit og almennt viðhald í kringum gestastofu og á bílastæðum við Hakið
Umhirða og eftirlit með sýningunni Hjarta lands og þjóðar
Framkvæmd gestakannana
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Reynsla af landvörslu og/eða leiðsögn er kostur en ekki skilyrði
Reynsla af móttöku hópa, fræðslu í skólum o.fl. er kostur
Landvarðaréttindi er kostur en ekki skilyrði
Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
Stundvísi
Verklagni
Umsækjendur þurfa að tileinka sér þekkingu á þjóðgarðinum og nærumhverfi hans
Umsækjendur þurfa að geta gengið í öll þau störf sem fyrir þá eru lögð
Grunnþekking í skyndihjálp er kostur en ekki skilyrði
Kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði. Frekari tungumálakunnátta er kostur
Ökuréttindi og hæfni til að aka bæði sjálf- og beinskiptum ökutækjum er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Ferilskrá skal fylgja umsókn og skulu umsóknir fara í gegnum starfatorg.is.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er elsti þjóðgarður landsins og hefur verið á heimsminjaskrá Unesco frá 2004. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er einn fjölmennasti ferðamannastaður landsins og því mjög lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem býður upp á fjölbreytt verkefni og krefjandi áskoranir á hverjum degi.
Umsókn getur gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Möguleiki er á tímabundinni framlengingu ráðningar.
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2025
Nánari upplýsingar veitir
Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir, jona@thingvellir.is
Þjónustuaðili
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Upplýsingar um starf
Starf
Landverðir í fræðslu og miðlun sumarið 2025
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.01.2025
Umsóknarfrestur
28.02.2025