Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Læknir með lækningaleyfi - Hefur þú augastað á augnlækningum?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.09.2024
Umsóknarfrestur
30.09.2024
Læknir með lækningaleyfi - Hefur þú augastað á augnlækningum?
Við sækjumst eftir almennum lækni sem hefur áhuga á sérfræðinámi í augnlækningum. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. nóvember 2024 eða skv samkomulagi, til 6 mánaða, með möguleika á framlengingu.
Við augnlækningar starfar öflugur hópur sérfræðilækna og almennra lækna í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjálfun í augnlækningum með þátttöku í klínísku starfi á göngu- og legudeild augndeildar auk bakvakta
Vinna við ráðgjöf undir umsjón sérfræðilækna
Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna, eftir því sem við á
Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum
Hæfniskröfur
Almennt íslenskt lækningaleyfi
Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi við upphaf starfs
Góð færni í mannlegum samskiptum
Öguð vinnubrögð
Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf
Mögulega umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Starfsferilsskrá
Vottað afrit af prófskírteini og starfsleyfi
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum eftir því sem við á. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, læknir með lækningaleyfi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2024
Nánari upplýsingar veitir
Gunnar Már Zoéga, gunnarmz@landspitali.is
Jóhann Ragnar Guðmundsson, johannrg@landspitali.is
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Læknir með lækningaleyfi - Hefur þú augastað á augnlækningum?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.09.2024
Umsóknarfrestur
30.09.2024