Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustufulltrúi á fullnustu- og skiptasviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.09.2024
Umsóknarfrestur
27.09.2024
Þjónustufulltrúi á fullnustu- og skiptasviði
Þjónustufulltrúi á fullnustu- og skiptasviði sinnir fjölbreyttum verkefnum á málaflokkum sviðsins. Verkefni varða lög sem gilda um málaflokkana, s.s. fjárnám, útburðar- og innsetningargerðir, kyrrsetningar, lögbönn, löggeymslur, nauðungarsölur og skipti á dánarbúum. Þjónustufulltrúi ber ábyrgð á að þjónusta viðskiptavini, taka á móti, afgreiða og skrá beiðnir og gögn og leysa farsællega úr verkefnum. Þjónustufulltrúi skal vinna að faglegri afgreiðslu mála samkvæmt lögbundnum verkferlum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meginverkefni er á sviði aðfarargerða en sinnir verkefnum annarra faghópa eftir þörfum
Upplýsingagjöf, leiðbeiningar og samskipti við viðskiptavini.
Skráning mála, umsýsla, bakvinnsla og eftirfylgni.
Undirbúningur fyrir fyrirtökur, móttaka og skráning afturkallana og frestana.
Úrlausn og eftirfylgni mála í samráði við fulltrúa.
Fylgd með fulltrúa í fullnustugerðum.
Frágangur gagna, skönnun og skjalavarsla.
Sinnir öðrum verkefnum, þvert á embættið, að beiðni yfirmanns.
Hæfniskröfur
Stúdentspróf skilyrði, háskólapróf kostur
Góð samskiptafærni og þjónustulund
Geta til að takast á við áskoranir með jákvæðu viðhorfi
Vilji til að þróa eigin færni í takt við þróun starfsins
Hæfni til að miðla upplýsingum
Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í starfi
Nákvæmni og traust vinnubrögð
Álagsþol og þrautseigja
Góð tölvukunnátta
Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn skal skilað í gegnum umsóknarkerfi Alfred.is og þarf að fylgja CV og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 100%. Vinnutími er frá kl. 08:00 – 15:30 alla virka daga nema föstudaga kl. 08:00 – 14:00.
Um launakjör fer eftir kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi, skv. lögum nr. 50/2014. Í umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu búa um 64% landsmanna. Nánari upplýsingar um verkefni sýslumanna má finna á island.is/syslumenn.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.09.2024
Nánari upplýsingar veitir
Þóra Björk Eysteinsdóttir, mannauðsstjóri, thora.bjork.eysteinsdottir@syslumenn.is
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustufulltrúi á fullnustu- og skiptasviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.09.2024
Umsóknarfrestur
27.09.2024