Mál nr. S-234/2026
Birt: 12.11.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Örorka og málefni fatlaðs fólks
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, í tengslum við framkvæmd sjúkra- og endurhæfingargreiðslna.
Meginefni frumvarpsins lýtur að breytingum á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, í tengslum við framkvæmd sjúkra- og endurhæfingargreiðslna, meðal annars í ljósi þess að snemmtæk íhlutun með réttri þjónustu á réttum tíma er talin vera áhrifaríkasta leiðin til að auka árangur endurhæfingar og stuðla að árangursríkri endurkomu á vinnumarkað sem og til að draga úr nýgengi örorku.
Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði er lúta að tímabundnum sjúkra- og endurhæfingargreiðslum verði færð í nýjan VII. kafla laganna úr IV. kafla gildandi laga en í þeim kafla er jafnframt kveðið á um varanlegan örorkulífeyri og hlutaörorkulífeyri. Er með þessu lögð áhersla á ólíkt eðli og markmið fyrrnefndra greiðslna. Enn fremur er gert ráð fyrir að í fyrrnefndum VII. kafla laganna, sem lagt er til að bætt verði við lögin, sbr. framangreint, verði ákvæði sem annars vegar lúta að sjúkragreiðslum og hins vegar að endurhæfingargreiðslum.
Helstu breytingarnar felast í því að sjúkragreiðslur og endurhæfingargreiðslur eru aðskildar og mælt fyrir um þær í sjálfstæðum lagagreinum auk þess sem hugtökin viðurkennd meðferð og endurhæfing eru skýrð sérstaklega. Með því er gerður afdráttarlaus greinarmunur á viðurkenndri meðferð innan heilbrigðiskerfisins annars vegar og atvinnutengdri starfsendurhæfingu hins vegar. Samhliða er hámarkstími sem heimilt er að greiða sjúkragreiðslur eða endurhæfingargreiðslu styttur í þrjú ár eða 36 mánuði úr allt að sjö árum samkvæmt gildandi lögum. Nýr 36 mánaða hámarkstími er talinn falla vel að gildandi framkvæmd þar sem meðallengd endurhæfingar er nú um 21,5 mánuðir en gögn Tryggingastofnunar sýna að mestar líkur eru á að vel takist til í tengslum við endurhæfingu fyrstu tvö árin eftir að endurhæfing hefst.
Enn fremur er gert ráð fyrir að lögfest verði að forsenda fyrir sjúkragreiðslum eða endurhæfingargreiðslum sé að fyrir liggi niðurstaða úr grunnmati sem lagt er til að Tryggingastofnun framkvæmi. Gengið er út frá því að matið verði byggt á alþjóðlegu flokkunarkerfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um færni, fötlun og heilsu (ICF) fremur en einhliða sjúkdómsgreiningu. Lagt er til að niðurstaða grunnmats gildi í allt að tólf mánuði í senn, meðal annars í því skyni að tryggja persónubundna þjónustu þannig að rétt þjónusta sé veitt á hverjum tíma. Samhliða er lagt til að rík tilkynningarskylda verði lögð á þjónustuaðila í tengslum við lok þjónustu í því skyni að koma í veg fyrir rof á þjónustu til einstaklinga. Markmiðið með grunnmati er meðal annars að stuðla að jafnræði umsækjenda um sjúkragreiðslur og endurhæfingargreiðslur á landsvísu með því að tryggja eins og unnt er að þeir fari allir í gegnum sama ferlið við mat á rétti til fyrrnefndra greiðslna.
Þá er í frumvarpinu lagt til að umsýsla, þ.m.t. greiðsla, sjúkradagpeninga færist frá Sjúkratryggingum til Tryggingastofnunar. Breytingin felur í sér einföldun fyrir einstaklinga sem verða óvinnufærir af heilsufarsástæðum, enda geta þeir framvegis leitað til einnar ríkisstofnunar þegar launatekjur falla niður vegna óvinnufærni. Sjúkradagpeningum er þannig ætlað að mynda fyrsta þrepið í samfelldri þjónustu- og framfærslukeðju almannatrygginga. Með flutningnum fær Tryggingastofnun jafnframt upplýsingar um veikindi einstaklinga fyrr en nú er sem vonast er til að geti skapað tækifæri til að styðja einstakling sem fellur brott af vinnumarkaði fyrr en áður.
Að öðru leyti er í frumvarpinu ekki gert ráð fyrir breytingum á lögum um almannatryggingar og er þannig hvorki gert ráð fyrir breytingum hvað varðar fjárhæðir greiðslna né hvað varðar frítekjumörk. Frumvarpið felur heldur ekki í sér efnislegar breytingar í tengslum við þjónustugátt eða vinnslu persónuupplýsinga frá því sem nú er kveðið á um í 28. gr. gildandi laga. Þó er gert ráð fyrir að fyrrnefnd 28. gr. gildandi laga verði flutt óbreytt í fyrirhugaðan VII. kafla laganna, sbr. 6. og i-lið 14. gr., þar sem ákvæðið á við um sjúkragreiðslur og endurhæfingargreiðslur.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa vinnumarkaðar og almannatrygginga
frn@frn.is