Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 12.11.–3.12.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-233/2026

Birt: 12.11.2026

Fjöldi umsagna: 0

Annað

Utanríkisráðuneytið

Utanríkismál

Tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum

Málsefni

Spretthópur skipaður af utanríkisráðherra óskar eftir umsögnum og ábendingum um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum.

Nánari upplýsingar

Hinn 9. október sl. skipaði utanríkisráðherra starfshóp (spretthóp) sem hefur það hlutverk að greina stöðu og þróun alþjóðaviðskiptakerfisins með hliðsjón af hagsmunum Íslands. Í þessu felst meðal annars að greina tækifæri og áskoranir í alþjóðlega viðskiptakerfinu og kortleggja ný viðskiptatækifæri. 

Vinna hópsins nær til mikilvægustu viðskiptamarkaða Íslands, bæði nær og fjær, þar á meðal innri markaðar EES, Bandaríkjanna, Bretlands, Kanada og Asíu. 

Spretthópnum er ætlað að móta tillögur að skýrum sameiginlegum markmiðum stjórnvalda og atvinnulífs, auk tillagna um ákveðnar aðgerðir sem unnt er að ráðast í, til skemmri og meðallangs tíma. Er honum enn fremur falið að skoða hvernig staða Íslands verði best tryggð til að styðja við samkeppnishæfni á sviði alþjóðaviðskipta og hagvöxt, hvernig efla megi hagsmunagæslu en einnig horfa til nýrra viðskiptatækifæra.

Þá er hópnum enn fremur falið að fjalla um EES-samninginn, það er hvernig megi best gæta hagsmuna Íslands á vettvangi samningsins og leggja enn betri rækt við samstarfið á grundvelli hans, svo sem þegar kemur að upptöku gerða og innleiðingu þeirra í landsrétt.

Í því ljósi vill spretthópurinn leita eftir sjónarmiðum og ábendingum almennings, einkum varðandi eftirfarandi atriði: 

- Hver eru helstu tækifæri til sóknar fyrir íslensk fyrirtæki (t.d. í hverju felast tækifærin og á hvaða mörkuðum?) 

- Hverjar eru helstu áskoranir og hindranir í núverandi viðskiptaumhverfi, innanlands og erlendis 

- Hvernig  stjórnvöld geti betur stutt við hagsmuni íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum 

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum

spretthopur@utn.is