Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 12.–26.11.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Fylgiskjöl

Mál nr. S-232/2026

Birt: 12.11.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Orkumál

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna flýtingar uppbyggingar raforkuinnviða, einföldunar leyfisferla og annarra úrbóta

Málsefni

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi sem ætlað er að einfalda leyfisferla og flýta uppbyggingu raforkuinnviða.

Nánari upplýsingar

Meðal þess sem lagt er til í frumvarpinu er að samþætt leyfisumsókn og umhverfismat verði meginregla við leyfisveitingar vegna framkvæmda sem háðar eru virkjunarleyfi skv. raforkulögum, nýtingarleyfi skv. lögum um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu, starfsleyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, og heimild til breytingar á vatnshloti skv. lögum um stjórn vatnamála. Þannig verði hægt að hefja vinnslu leyfisumsókna á meðan umhverfismat stendur yfir og samræma tímaáætlanir stjórnvalda.

Við framkvæmd umhverfismats getur komið upp óvissa um málsmeðferð þegar ný gögn berast, framkvæmd breytist eða forsendur fyrra mats reynast ekki lengur fullnægjandi. Hið sama á við þegar leyfi hefur verið fellt úr gildi vegna annmarka á umhverfismati. Nauðsynlegt er að skýrt sé hvernig bæta megi úr slíkum annmörkum eða uppfæra mat án þess að endurtaka að óþörfu þá þætti þess sem halda gildi sínu. Umfang viðbótarvinnu og kynningar þarf að ráðast af eðli og þýðingu breytinganna og tengslum þeirra við fyrra mat. Skýrari málsmeðferð er jafnframt mikilvæg til að tryggja að almenningur og umsagnaraðilar fái tækifæri til að fjalla um nýjar upplýsingar sem geta haft verulega þýðingu fyrir niðurstöðu máls. Því er með frumvarpinu lagt til að einfaldara verði að uppfæra umhverfismat þegar forsendur breytast eða nýjar upplýsingar koma fram. Þá verði viðbótarvinna og kynning afmörkuð við þau atriði sem breytingarnar varða og þarfnast frekari skoðunar, í stað þess að endurtaka matsferlið í heild.

Aðgangur að landi er annað sjálfstætt viðfangsefni við uppbyggingu raforkuinnviða. Ágreiningur um landréttindi, tilhögun framkvæmda eða fjárhæð bóta getur tafið verkefni þótt öðrum undirbúningi þeirra sé langt komið. Frumvarpið felur í sér skýrari reglur um samningaviðræður við landeigendur og meðferð eignarnámsmála og áhersla lögð á að greiða úr ágreiningi og koma í veg fyrir óþarfa tafir, samhliða því að réttindi landeigenda og réttur til bóta séu tryggð. Þá er lagt til að veghelgunarsvæði verði að jafnaði nýtt fyrir raforkulagnir þar sem því verður við komið, í samráði við veghaldara og með leyfi hans.

Tenging getur bæði kallað á aukinn kostnað og haft ávinning fyrir kerfið, svo sem með betri nýtingu mannvirkja eða minni flutningstakmörkunum. Við ákvörðun kostnaðarþátttöku þarf að vera unnt að líta til þessara heildaráhrifa. Er því lagt til að reglur um tengingu nýrra virkjana og stórnotenda verði skýrari, meðal annars þannig að tengigjöld taki mið af heildaráhrifum tenginga á raforkukerfið auk þess sem Landsnet fái lagaheimild fyrir svokölluðu innmötunargjaldi. Með því geta skapast forsendur til verulegrar lækkunar á hamlandi upphafskostnaði sem staðið hefur atvinnuuppbyggingu, sérstaklega á viðkvæmum kerfissvæðum, fyrir þrifum.

Mikilvægi raforkukerfisins fyrir samfélagið kallar einnig á skýrar reglur um vernd þess. Framkvæmdir í grennd við raflínur, jafnt á landi sem í sjó, geta valdið skemmdum og röskun á afhendingu raforku.. Því er með frumvarpinu lagt til að kveðið verði skýrar á um vernd raflína, skyldu til upplýsingaöflunar og samráðs áður en ráðist er í framkvæmdir í grennd við þær og ábyrgð vegna tjóns og röskunar. Jafnframt er lagður til afmarkaður lagarammi um bakgrunnsathuganir vegna starfa sem fela í sér aðgang að viðkvæmum raforkuinnviðum, stjórnkerfum eða upplýsingum.

Með frumvarpinu er enn fremur lagt til að hækka stærðarmörk virkjunarkosta sem falla undir rammaáætlun. Viðmiðið fyrir rafafl hækkar samkvæmt tillögunni úr 10 MW í 25 MW og fyrir varmaafl úr 50 MW í 125 MW. Sérreglur um vindorku haldast óbreyttar.

Verulegur munur á umfangi málsmeðferðar eftir því hvort uppsett afl er undir eða yfir 10 MW getur hvatt framkvæmdaaðila til að halda afli undir viðmiðinu þótt aðstæður gefi kost á meiri orkuvinnslu. Þannig er hætta á að aflmarkið ráði útfærslu framkvæmdar fremur en hagkvæm nýting viðkomandi virkjunarkosts. Hækkun aflmarkanna getur því stuðlað að hlutfallslega betri nýtingu auðlinda og innviða miðað við umfang rasks.

Athygli er vakin á að umsagnarfrestur í Samráðsgátt er til og með 26.11.2026

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (26)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa orkumála

magnus.baldursson@urn.is