Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 3.–17.11.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-226/2026

Birt: 3.11.2026

Fjöldi umsagna: 5

Drög að frumvarpi til laga

Forsætisráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Frumvarp til laga um sanngirnisbætur

Málsefni

Frumvarpið tekur til einstaklinga í viðkvæmri stöðu, þ.e. barna sem vistuð hafa verið sólarhringsvistun eða lengri á vegum eða fyrir atbeina stjórnvalda, og áhersla lögð á sálrænan stuðning.

Nánari upplýsingar

Meginatriði frumvarpsins

Með frumvarpinu er komið á varanlegu úrræði fyrir þá sem urðu sem börn fyrir illri meðferð eða ofbeldi í vistun utan heimilis fyrir atbeina stjórnvalda:

• Úrræðið tekur til vistunar frá 27. mars 1947 þegar lög um vernd barna og ungmenna tóku gildi, er ekki bundið lokatímamarki og er óháð því hvort rannsókn hafi farið fram á viðkomandi heimili. Það nær bæði til vistunar á opinberum stofnunum og einkaheimilum.

• Skapaður er farvegur fyrir viðkomandi einstaklinga að koma reynslu sinni á framfæri og fá stuðning og viðurkenningu á misgjörðum.

• Bætur eru ákveðnar í þremur flokkum, 1, 3 og 5 millj. kr. Sálrænn stuðningur verður háður faglegu mati á þörfum viðkomandi.

• Sjálfstæð sjóðsstjórn tekur ákvarðanir á grundvelli umsókna og dagleg umsýsla verður hjá sýslumanni.

• Móttaka umsókna hefst 1. janúar 2028 verði frumvarpið að lögum á þessu þingi.

Nánari afmörkun

Tilkall til sanngirnisbóta er afmarkað á ýmsan hátt þannig að hægt verði að standa fjárhagslega undir væntingum og koma skipulega til móts við einstaklinga sem sumir hverjir hafa lengi beðið úrlausnar sinna mála:

• Bótafjárhæðir verða hóflegar og er þá horft til þess að efla fremur sálrænan stuðning auk þess sem horft er til norska kerfisins þar sem þak er 250.000 NOK (3,2 milljónir íslenskra króna).

• Ekki verður um lagalegan rétt að ræða heldur geta einstaklingar sótt um bætur en útgreiðsla er háð ákvörðun stjórnvalda og því að fjármagn sé til staðar í sanngirnisbótasjóði.

• Bætur eru staðlaðar að vissu marki og ekki gert ráð fyrir kærumöguleika innan stjórnsýslunnar til að draga úr kostnaði við úrræðið.

• Úrræðið er bundið við vistun barna en nær ekki til ýmiss konar vistunar fullorðinna einstaklinga né annars konar aðstæðna.

• Bætur verða ekki greiddar til þeirra sem fyrri sanngirnisbótakerfi náðu til.

• Bætur verða ekki greiddar vegna vistunar á einkaheimilum nema eftirliti hafi verið verulega ábótavant.

• Bótatilkall erfist ekki nema umsókn hafi verið lögð inn áður en viðkomandi féll frá.

Kostnaður

Miðað er við að hægt verði að greiða bætur til um það bil 1250 einstaklinga á fimm ára tímabili. Það er sami fjöldi og naut góðs af eldra sanngirnisbótakerfi. Þótt bótagreiðslur verði lægri nú (þá var þakið 6 milljónir kr. á verðlagi ársins 2010) er stóraukin áhersla á sálrænan stuðning.

Gert er ráð fyrir að stuðningurinn verði á heildina litið hliðstæður og í fyrra kerfi, þ.e. sem nemur 5-6 milljörðum kr. á núvirði.

Í kaflanum um mat á áhrifum er uppleggið að ríkið muni tryggja þá 5-6 milljarða sem hér um ræðir en vissulega eru væntingar um að sveitarfélög og einkaaðilar muni taka þátt í þeim kostnaði en það er þó óvissu háð.

Stjórnsýsluleg umgjörð

Í frumvarpinu er lagt til að með lögum verði settur á fót sanngirnisbótasjóður. Sú leið er farin til að opna á að sveitarfélög og einkaaðilar geti lagt málefninu lið.

Sýslumanni verði falin dagleg umsýsla með starfsemi sjóðsins, þar á meðal móttaka umsókna, leiðbeiningar og gagnaöflun. Sýslumannsembættin höfðu hlutverk samkvæmt eldra sannginisbótakerfi, þau fara nú þegar með ýmis mál sem kalla á bein samskipti við borgarana og þau hafa einnig skrifstofur víðs vegar um landið.

Skattalegir hvatar til framlaga í sjóðinn

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að framlög einstaklinga og lögaðila til sjóðsins verði frádráttarbær frá tekjum líkt og á við um almannaheillafélög.

Þá kunna aðstæður að vera þannig að tilteknir einstaklingar eða lögaðilar finni hjá sér þörf að leggja sitt af mörkum vegna aðkomu þeirra að málum sem verið er að vinna úr.

Hlutdeild sveitarfélaga

Ekki þykir fært að kveða fyrirfram á um kostnaðarhlutdeild sveitarfélaga. Þess í stað er gert ráð fyrir ráðherra semji við Samband íslenskra sveitarfélaga um réttláta skiptingu.

Kærumöguleikar

Ekki er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að kæra megi ákvarðanir sjóðsstjórnar til æðra stjórnvalds.

Rök fyrir því að fara leið frumvarpsins eru þau að einfalda málsmeðferð og draga úr kostnaði við hana. Þá er hér eðli máls samkvæmt um nokkuð matskenndar ákvarðanir að ræða og benda má á að ekki er um kærumöguleika að ræða samkvæmt norska kerfinu þar sem nefnd á vegum Stórþingsins ákveður sanngirnisbætur.

Eftir sem áður er sá möguleiki fyrir hendi að fara með mál fyrir dómstóla til ógildingar eða umboðsmann Alþingis auk þess sem sjóðsstjórnin getur endurupptekið mál samkvæmt almennum reglum.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (14)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stjórnskipunar

for@for.is