Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 3.–16.11.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-225/2026

Birt: 3.11.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að reglugerð

Dómsmálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Drög að reglugerð um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt

Málsefni

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt

Nánari upplýsingar

Samkvæmt 4. mgr. 56. gr. laga um útlendinga nr.80/2016 er ráðherra heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um kröfu um trygga framfærslu, þ.m.t. um hvað telst trygg framfærsla, hvernig henni skuli háttað og hvenær víkja megi frá kröfunum. Samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952 skal ráðherra setja reglugerð um nánari framkvæmd framfærsluskilyrðis þeirra laga.

Efni reglugerðarinnar skiptist í tvo meginkafla, annars vegar um trygga framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og hins vegar um framfærslu umsækjenda um íslenskan ríkisborgararétt. Fjárhæð framfærsluviðmiða þessara flokka hafa hingað til verið þau sömu og er að því leyti um óbreytta framkvæmd að ræða. Reglugerðin tekur ekki til dvalarleyfa á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða dvalarleyfa á grundvelli mannúðarsjónarmiða en lögin heimila að útgáfa slíkra dvalarleyfi sem og endurnýjanir séu án framfærsluskilyrða.

Með reglugerðinni verður gert ráð fyrir að hjón geti sýnt fram á sameiginlega framfærslu, en sambúðarmakar hafa ekki gagnkvæma framfærsluskyldu og þarf hvor um sig því að sýna fram á sjálfstæða framfærslu. Gera skal ráð fyrir framfærslu allra barna sem eru á framfæri umsækjanda eða búsett hjá honum, ekki aðeins þeirra sem getið er í umsókn. Þegar barn sækir um fjölskyldusameiningu skal foreldri ábyrgjast framfærslu þess. Taka má tillit til umönnunargreiðslna vegna langveikra og fatlaðra barna.

Þá er gert ráð fyrir að vægari kröfur verði gerðar þar sem umsækjendur hafa takmarkaða heimild til atvinnuþátttöku eða fær húsnæði og jafnvel fæði eða vasapeninga meðan á dvöl stendur. Heimilt er að víkja frá lágmarksfjárhæð vegna fatlaðs einstaklings með langvarandi stuðningsþarfir.

Gert er ráð fyrir því við gildistöku verði heimilt að meta þær umsóknir um endurnýjanir sem bárust fyrir gildistöku reglugerðarinnar á grundvelli þágildandi viðmiða. Í slíkum tilvikum yrði heimilt að framlengja dvalarleyfi til allt að 12 mánaða.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa alþjóðamála

dmr@dmr.is