Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 29.10.–12.11.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Fylgiskjöl

Mál nr. S-223/2026

Birt: 29.10.2026

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Innviðaráðuneytið

Sveitarfélög og byggðamál

Áform um frumvörp varðandi byggðatengdar veiðiheimildir

Málsefni

Áformað er að endurskoða lagaumgjörð byggðatengdra veiðiheimilda með það að markmiði að skýra markmið, einfalda kerfið og styrkja atvinnu og búsetu í minni sjávarbyggðum.

Nánari upplýsingar

Innviðaráðuneytið kynnir áform um endurskoðun lagaumgjarðar byggðatengdra veiðiheimilda. Endurskoðunin tekur til strandveiða, almenns byggðakvóta, sértæks byggðakvóta Byggðastofnunar, línuívilnunar og skel- og rækjubóta. Markmiðið er að skýra tilgang einstakra úrræða, einfalda framkvæmd og stuðla að því að ráðstöfun aflaheimilda styðji með markvissari og mælanlegri hætti við atvinnu og búsetu í minni sjávarbyggðum.

Ákveðið hefur verið að vinna að breytingunum í tveimur aðskildum frumvörpum. Annars vegar verður unnið frumvarp sem tekur eingöngu til strandveiða og stefnt er að því að leggja það fram á Alþingi á næstunni. Hins vegar verður unnið frumvarp um breytingar á almennum og sértækum byggðakvóta, línuívilnun og skel- og rækjubótum. Stefnt er að framlagningu þess eftir áramót, á árinu 2027.

Skiptingin gerir kleift að fjalla sérstaklega um aðgreind úrræði og haga undirbúningi og gildistöku breytinga í samræmi við ólíkar tímasetningar þeirra. Fyrirhugað er að breytingar á strandveiðikerfinu taki gildi fyrir strandveiðivertíðina 2027. Ekki er gert ráð fyrir að breytingar á byggðakvóta, línuívilnun og skel- og rækjubótum taki gildi fyrr en við upphaf fiskveiðiársins 2027/2028, hinn 1. september 2027.

Að því er varðar strandveiðar er markmiðið að þeir sem uppfylla almenn skilyrði hafi raunhæfan möguleika á 48 veiðidögum á tímabilinu. Að því er varðar strandveiðar er fyrirhugað að lögfesta markmið þeirra, binda strandveiðileyfi við einstakling og skýra skilyrði um eignarhald og útgerð. Jafnframt er stefnt að auknu svigrúmi til að setja reglur um nýtingu ufsa, breyttu fyrirkomulagi við skiptingu landsvæða og hertum viðbrögðum við umframafla.

Að því er varðar önnur úrræði er stefnt að því að skýra markmið almenns og sértæks byggðakvóta, tengsl þeirra og úthlutunarviðmið. Sérstaklega verður horft til þess hvernig heimildirnar geti nýst þeim sjávarbyggðum sem standa höllum fæti vegna samdráttar í sjávarútvegi, fámennis eða takmarkaðra atvinnukosta. Jafnframt verða línuívilnun og skel- og rækjubætur teknar til endurskoðunar, þar á meðal hvort rétt sé að endurmóta þær ráðstafanir eða fella þær niður. Þá verður hugað að skilyrðum um löndun og vinnslu, verkaskiptingu stjórnvalda, eftirliti og reglubundnu árangursmati.

Óskað er eftir umsögnum um áformin og frummat á áhrifum þeirra sem fylgja málinu. Á þessu stigi er leitað sjónarmiða um markmið og mögulegar útfærslur breytinganna áður en frumvarpsdrög verða fullmótuð. Sérstaklega er óskað eftir ábendingum um áhrif á einstök byggðarlög, útgerðir og fiskvinnslur, framkvæmd úrræðanna og þörf fyrir aðlögunartíma.

Frumvarpsdrög vegna hvors máls verða kynnt sérstaklega til samráðs.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála

irn@irn.is