Til umsagnar
28.10.–8.11.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-222/2026
Birt: 28.10.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Með frumvarpinu er lagt til að gildi taki ný heildarlög um markaðseftirlit þar sem jafnframt verði lögfest reglugerð (ESB) 2019/1020 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur.
Með frumvarpi til laga um markaðseftirlit er lagt til að ný heildarlög taki gildi um markaðseftirlit, sem komi í stað ákvæði um markaðseftirlit í lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995. Með frumvarpinu verði lögfest reglugerð (ESB) 2019/1020, sem fjallar um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur, sem tekin var upp í EES-samninginn í desember 2023.
Ný heildarlög um markaðseftirlit hafa það hlutverk að setja heildstæðan regluramma um stjórnsýslu markaðseftirlits í landinu og koma til fyllingar ákvæðum um markaðseftirlit í sérlöggjöf um tiltekna vöruflokka. Í lögfestingu reglugerðar (ESB) 2019/1020 felst að efnisákvæði þeirrar reglugerðar öðlast lagagildi hér á landi, en þar koma fram samevrópskar meginreglur um markaðseftirlit. Meðal þess sem reglugerðin kveður á um er starfsemi markaðseftirlitsyfirvalda og þær valdheimildir sem þeim ber að lágmarki að hafa, samstarf markaðseftirlitsyfirvalda innan Evrópska efnahagssvæðisins og samstarf við tollyfirvöld um innflutning frá þriðju ríkjum og skyldur rekstraraðila sem bjóða fram vöru á innri markaðnum, þar á meðal í gegnum netverslun.
Með frumvarpinu er lagt til að Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) fari með hlutverk svokallaðrar miðlægrar tengiskrifstofu markaðseftirlits í skilningi reglugerðarinnar. Í því felst að HMS verður falið að vera samræmingaraðili markaðseftirlits hér á landi, leiða samstarf við önnur markaðseftirlitsyfirvöld og koma fram fyrir þeirra hönd sameiginlega út á við þegar á þarf að halda. Þá beri HMS ábyrgð á að leggja drög að landsbundinni stefnuáætlun um markaðseftirlit og á að fylgja henni eftir auk þess að vera almennt markaðseftirlitsyfirvald fyrir þær vörur sem ekki eru á ábyrgð annarra stjórnvalda samkvæmt sérlögum.
Í frumvarpinu er kveðið á um þær rannsóknarheimildir sem markaðseftirlitsyfirvöld geta gripið til í störfum sínum við markaðseftirlit og þau úrræði sem þau geta gripið til þegar rannsókn hefur leitt í ljós að vara er hættuleg eða samræmist ekki þeim kröfum sem til hennar eru gerðar. Þær heimildir og þau úrræði sem koma fram í frumvarpinu koma til fyllingar heimildum og úrræðum sem markaðseftirlitsyfirvöld geta gripið til samkvæmt sérlöggjöf um tiltekna vöruflokka. Auk þess koma fram í frumvarpinu reglur um endurheimt kostnaðar vegna markaðseftirlits þegar vörur reynast ekki uppfylla kröfur, reglur um upplýsingaskipti milli stjórnvalda í tengslum við markaðseftirlit og ákvæði um dagsektir og stjórnvaldssektir. Loks er kveðið á um afleiddar breytingar á lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995, sem miða að því að sú löggjöf fjalli framvegis aðeins um almennt vöruöryggi, og á tollalögum, nr. 88/2005, sem varðar aðgerðir tollyfirvalda og samstarf við markaðseftirlitsyfirvöld um innflutning vöru þegar vara kemur inn á innri markað Evrópska efnahagssvæðisins frá þriðju ríkjum.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
steindor.dan.jensen@atrn.is