Til umsagnar
28.10.–9.11.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-221/2026
Birt: 28.10.2026
Fjöldi umsagna: 2
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Lagt er til að embætti vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknara verði lögð niður. Þess í stað verði ríkissaksóknara og héraðssaksóknara heimilt að velja staðgengla sína úr hópi saksóknara.
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, o.fl. (niðurlagning embætta).
Með frumvarpinu er lagt til að embætti vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknara verði lögð niður sem sjálfstæð embætti sem skipað er í ótímabundið. Þess í stað verði ríkissaksóknara og héraðssaksóknara heimilt að velja sér staðgengla úr hópi saksóknara við embættin til allt að fimm ára í senn. Áfram verði notast við starfsheitin vararíkissaksóknari og varahéraðssaksóknari yfir staðgenglana.
Markmið frumvarpsins er að einfalda stjórnfyrirkomulag embættanna og styrkja sjálfstæði ákæruvaldsins með því að fela ríkissaksóknara og héraðssaksóknara sjálfum að velja sína næstráðendur í stað þess að ráðherra skipi í þau embætti.
Gert er ráð fyrir að lögin öðlist þegar gildi, en nýtt fyrirkomulag við val á staðgengli héraðssaksóknara og niðurlagning embættis varahéraðssaksóknara taki þó ekki gildi fyrr en það embætti verður næst laust.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa réttarfars
dmr@dmr.is