Til umsagnar
20.10.–10.11.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-213/2026
Birt: 20.10.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Drög að breytingum á náttúruverndarlögum um uppbyggingu innviða, landtöku farþega á friðlýstum svæðum, vernd náttúruminja í hafi og bættum úrræðum vegna ólögmæts utanvegaaksturs.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013. Markmiðið er að bæta stjórnsýslu og nýtingu fjármuna til náttúruverndar, bregðast við álagi vegna ferðamennsku og styrkja vernd náttúru og menningarminja. Frumvarpið tekur til fjögurra meginþátta.
Uppbygging og viðhald innviða á ferðamannastöðum
Í frumvarpinu er lagt til að einfalda og bæta fyrirkomulag landsáætlunar um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Ákvæði um áætlunina verði færð úr þeim sérlögum sem um hana gilda í náttúruverndarlög. Með breytingunum verði regluverk einfaldað og stuðlað að markvissari uppbyggingu og viðhaldi innviða á ferðamannastöðum í umsjón ríkisaðila, skýrari forgangsröðun og hagkvæmari nýtingu fjármuna. Jafnframt verði ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd áætlunarinnar skýrð og eftirlit með kostnaði og framvindu verkefna styrkt.
Landtaka á friðlýstum svæðum
Lagt er til að settar verði skýrar og samræmdar reglur um landtöku farþega af skemmtiferða- og leiðangursskipum á friðlýstum svæðum. Slík landtaka verði háð leyfi Náttúruverndarstofnunar og unnt verði að laga umfang hennar og framkvæmd að aðstæðum á hverju svæði. Markmiðið er að vernda viðkvæma náttúru, stuðla að öryggi farþega og taka tillit til upplifunar annarra gesta. Jafnframt er stefnt að því að tryggja rekstraraðilum skýrara og fyrirsjáanlegra ferli.
Friðlýsing og friðun í hafi
Lagt er til að skýra heimildir til friðlýsingar og friðunar í hafi og laga orðalag einstakra ákvæða laganna betur að vernd náttúruminja á hafsvæðum. Faglegur undirbúningur verði styrktur með því að samráð við Hafrannsóknastofnun verði einnig lögbundið við undirbúning friðunar í hafi. Jafnframt verði málsmeðferð skýrð þannig að í stað samráðs við ráðherra sjávarútvegsmála verði leitað álits hans. Markmiðið er að stuðla að markvissari vernd og skilvirkari afgreiðslu mála með skýrri verkaskiptingu stjórnvalda.
Úrræði vegna utanvegaaksturs
Lagt er til að styrkja enn frekar úrræði stjórnvalda til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri og draga úr náttúruspjöllum af hans völdum. Náttúruverndarstofnun verði heimilt að annast nauðsynlegar úrbætur á verulegum náttúruspjöllum vegna slíks aksturs og krefja þann sem veldur spjöllunum um kostnað við úrbæturnar. Jafnframt fái lögregla afmarkaða heimild til tímabundinnar haldlagningar ökutækja til að koma í veg fyrir áframhaldandi brot eða frekari spjöll. Þá verði viðurlög vegna brota sem valda alvarlegum náttúruspjöllum hert og samræmd viðurlögum samkvæmt öðrum lögum á þessu sviði.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa loftslags og náttúru
hafsteinn.s.hafsteinsson@urn.is