Til umsagnar
20.10.–17.11.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-212/2026
Birt: 20.10.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Um er að ræða drög að breytingum á reglugerð nr. 442/2024 um kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga í kosningum. Drögin byggjast á tillögum frá landskjörstjórn.
Í 139. gr. kosningalaga er kveðið á um að kostnaður við aðrar kosningar en sveitarstjórnarkosningar greiðist úr ríkissjóði. Í reglugerð skal ráðherra kveða á um fjárframlög ríkisins til sveitarfélaga vegna hlutverks þeirra við framkvæmd annarra kosninga en sveitarstjórnarkosninga. Reglugerðina skal setja á grundvelli tillagna frá landskjörstjórn og að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Samkvæmt ákvæðum kosningalaga hafa yfirkjörstjórnir sveitarfélaga umsjón með framkvæmd kosninga á kjörstað. Fyrir það verkefni ber ríkinu að greiða sveitarfélögum fjárframlag. Stærstur hluti kostnaðar sveitarfélaganna er launakostnaður og síðan kostnaður við uppsetningu á kjörstöðum.
Í gildandi reglugerð sem er að grunni til frá árinu 2024, síðast breytt með reglugerð nr. 885/2026, er kveðið á um að ríkið greiði hverju sveitarfélagi ákveðna krónutölu fyrir hvern kjósanda á kjörskrá (1.027 kr.) og ákveðna krónutölu vegna hvers kjörstaðar (764.000 kr.) Byggir sú tillaga á þeirri framkvæmd sem lengi hefur verið við lýði. Sum sveitarfélög hafa sinnt sínum verkefnum með þeim fjármunum sem þeim hefur verið úthlutað, önnur hafa talið sig mjög vanhaldin af framlagi ríkisins til verkefnisins. Í reglugerðina var því sett ákvæði um, að loknum forsetakosningum og alþingiskosningum árið 2024, skyldi hvert sveitarfélag senda landskjörstjórn sundurliðað kostnaðaryfirlit þar sem fram kæmi á skýran og greinargóðan hátt í hverju kostnaður sveitarfélagsins hafi verið fólginn og þær fjárhæðir sem um væri að ræða. Landskjörstjórn skyldi síðan í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga greina upplýsingarnar þannig að ljóst væri hver raunkostnaður sveitarfélaga hafi verið við kosningarnar og í hverju hann fælist.
Í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar hefur landskjörstjórn kallað eftir upplýsingum frá sveitarfélögum um þau útgjöld sem sveitarfélögin hafa haft af framkvæmd þeirra verkefna sem þeim eru falin skv. kosningalögum. Samkvæmt þeim upplýsingum var kostnaður sveitarfélaganna við forsetakosningarnar 2024 í heildina 386,5 m.kr. og við alþingiskosningar 2024 429.7 m.kr. Fjárframlag ríkisins vegna forsetakosninganna var 372,3 m.kr. og vegna alþingiskosninganna 380,3 m.kr. Kostnaður sveitarfélaganna umfram framlag ríkissjóðs var því ríflega 14 m.kr. í forsetakosningunum og 49,3 m.kr. í alþingiskosningunum.
Á grundvelli framangreindra upplýsinga frá sveitarfélögunum hefur landskjörstjórn sett fram tillögur að breytingu á reglugerðinni um fjárframlög ríkisins til sveitarfélaga og leggur eftirfarandi til:
Að sveitarfélögum verði skipt í þrjá flokka:
1. Sveitarfélög með 299 kjósendur á kjörskrá eða færri fái greiddar 825.000 kr. eingreiðslu.
2. Sveitarfélög með 300 kjósendur á kjörskrá eða fleiri fái greiddar 1.650.000 kr. eingreiðslu
3. Að auki skuli greiða hverju sveitarfélagi þar sem kjósendur á kjörskrá eru 1000 eða fleiri 1.227 kr. fyrir hvern kjósanda á körskrá umfram 1.000.
4. Þá fái hvert sveitarfélag með fleiri en einn byggðakjarna með 100 íbúum eða fleiri 825.000 kr. fyrir hvern byggðakjarna umfram einn.
Þá er lagt til að felld verði niður krafa um að sveitarfélög greiði Þjóðskrá Íslands fyrir notkun á meðmælendakerfi kjósi sveitarfélagið að nýta sér kerfið. Þess í stað geta sveitarfélög snúið sér til landskjörstjórnar vilji þau nýta sér slíkt kerfi án greiðslu sérstaks gjalds.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa réttarfars
dmr@dmr.is