Til umsagnar
17.–26.10.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-210/2026
Birt: 17.10.2026
Fjöldi umsagna: 5
Drög að stefnu
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Leikskólar, grunnskólar, önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála
Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030.
Mennta- og barnamálaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030. Í drögunum eru um þrjátíu aðgerðir sem miða að því að hvert barn nái betri árangri í námi og búi við meiri farsæld.
Áætlunin tekur til áranna 2027–2030. Með henni er byggt á því sem vel er gert og lögð áhersla á að styrkja lykilstoðir menntakerfisins.
Áhersluatriðin eru sex:
1. Kennarar í fremstu röð – aukin gæði kennslu.
2. Stórsókn í útgáfu námsgagna – fjölbreytt og vönduð námsgögn.
3. Stuðningur strax – öruggt og inngildandi skólasamfélag.
4. Alla leið – ekkert ungmenni týnist á leiðinni úr grunnskóla í framhaldsskóla og út í lífið.
5. Skref fram á veginn – raunvísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði (STEM), gervigreind og hæfni fyrir samfélag framtíðar.
6. Menntastefna til framtíðar.
Í drögunum er meðal annars lagt til að efla starfsþróun kennara, vinna langtímaáætlun um læsi, auka útgáfu fjölbreyttra námsgagna og styrkja stuðning við nemendur og inngildingu. Einnig er lögð áhersla á aukna þátttöku foreldra og samræmd landsviðmið um skólasókn.
Lagt er upp með skýr og mælanleg markmið og mælikvarða til að fylgjast með framvindu og árangri aðgerðanna.
Áætlunin er liður í innleiðingu menntastefnu til 2030, sem Alþingi samþykkti með þingsályktun 24. mars 2021. Áformað er að mennta- og barnamálaráðherra leggi áætlunina fram á Alþingi sem tillögu til þingsályktunar.
Börn, foreldrar, kennarar, skólastjórnendur, annað fagfólk og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér drögin og senda inn umsögn.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
mrn@mrn.is