Til umsagnar
16.–28.10.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-209/2026
Birt: 16.10.2026
Fjöldi umsagna: 3
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um stórþörungarækt í sjó.
Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um stórþörungarækt í sjó. Ræktun stórþörunga er atvinnustarfsemi sem getur skapað ný tækifæri til verðmætasköpunar og nýtingar auðlinda hafsins. Ekki er í dag til staðar heildstæður lagarammi um slíka starfsemi hér á landi. Markmið frumvarpsins er að skapa skýra umgjörð um stórþörungarækt í sjó og stuðla að ábyrgri og sjálfbærri nýtingu haf- og strandsvæða.
Í frumvarpinu er meðal annars mælt fyrir um rannsóknarleyfi og rekstrarleyfi til stórþörungaræktar, skilyrði fyrir veitingu þeirra og skyldur leyfishafa. Lagt er til samþætt leyfisveitingarkerfi þar sem Stofnun atvinnuveganna fer með leyfisveitingar, með aðkomu viðeigandi fagstofnana. Með því er stefnt að einfaldari og skilvirkari leyfisferlum án þess að dregið sé úr kröfum um umhverfisvernd og eftirlit.
Jafnframt er í frumvarpinu lögð áhersla á vernd lífríkis sjávar, uppruna ræktunarefnis og varnir gegn útbreiðslu framandi tegunda. Þá er mælt fyrir um kröfur til ræktunarbúnaðar, umgengni á ræktunarsvæðum, eftirlit og frágang að starfsemi lokinni.
Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um frumvarpsdrögin.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa auðlinda
atrn@atrn.is