Mál nr. S-207/2026
Birt: 15.10.2026
Fjöldi umsagna: 2
Drög að reglugerð
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Reglugerð um afmörkun viðkvæmra sviða samkvæmt 3. gr. laga nr. 84/2026 um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Markmið reglugerðarinnar er að setja fram nánari skilgreiningar á þeim geirum og starfsemi sem teljast til viðkvæmra sviða í skilningi 1.-7. tölul. 3. gr. laga nr. 84/2026 um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Samkvæmt 3. gr. laganna telst innlendur rekstraraðili starfa á viðkvæmu sviði ef hann hefur með höndum starfsemi innan eftirfarandi sviða:
"1. Mikilvæga innviði sem tengjast m.a. orku, hitaveitu, vatns- og fráveitu, samgöngum, flutningum, fjarskiptum, stafrænum grunnvirkjum, fjármálakerfi, vörnum landsins, stjórnkerfi, landhelgisgæslu, almannavörnum, löggæslu, neyðar- og viðbragðsþjónustu, réttarvörslu og heilbrigðiskerfi.
2. Útvegun eða framleiðslu á mikilvægum aðföngum, þ.m.t. í tengslum við orku eða hráefni eða vegna fæðuöryggis.
3. Nýtingu vatnsorku, jarðvarma, vindorku, náma og annarra jarðefna í þjóðlendum.
4. Meðhöndlun mikilvægra trúnaðarupplýsinga sem tengjast mikilvægum innviðum skv. 1. tölul. og þjónustu á sviði netöryggis í þágu slíkra innviða. Einnig meðhöndlun verulegs magns viðkvæmra trúnaðarupplýsinga um almenning, þ.m.t. vegna lífsýnasafna og sjúkraskráa.
5. Framleiðslu, þróun eða notkun á hlutum með tvíþætt notagildi samkvæmt lögum um afvopnun, takmörkun vígbúnaðar og útflutningseftirlit.
6. Framleiðslu, þróun eða notkun á hergögnum og -tækni.
7. Framleiðslu eða þróun á annars konar mikilvægri tækni en fellur undir aðra töluliði þessarar greinar."
Samkvæmt sömu grein skal ráðherra tilgreina nánar í reglugerð þá starfsemi sem fellur undir framangreinda liði, og er það gert með reglugerðinni.
Ákvæði reglugerðarinnar gilda þegar leyst er úr því hvort innlendur rekstraraðili teljist starfa á viðkvæmu sviði skv. 3. gr. laga nr. 84/2026, þ.m.t. við mat á því hvort ráðstöfun sem varðar rekstraraðilann sé tilkynningarskyld til ráðherra, sbr. 4. og 5. gr. laganna, sbr. einnig 3. mgr. 7. gr. og 1. tölul. 12. gr. laganna.
Reglugerðin var unnin í samráði við þau fagráðuneyti sem fara með þá málaflokka sem fram koma í 3. gr. laga nr. 84/2026.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
atrn@atrn.is