Til umsagnar
9.10.–13.11.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-191/2026
Birt: 9.10.2026
Fjöldi umsagna: 0
Annað
Innviðaráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Sett eru fram tillögur að 30 mælikvörðum og skilgreindum viðmiðum sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma.
Innviðaráðherra skipaði í desember sl. starfshóp með fulltrúum innviðaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að móta sameiginlega viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. Í vinnu starfshópsins var stuðst við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um að stuðla að því að þörfum nútímans sé mætt án þess að gengið sé á gæði komandi kynslóða. Verkefnið er liður í aðgerð 1 í þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2028.
Stjórnvöld leggja áherslu á að stuðlað sé að sjálfbærni í starfsemi sveitarfélaga en ekki hefur legið fyrir sameiginlegur skilningur á þremur þáttum sjálfbærni á sviðum efnahags, samfélags og umhverfis. Sem dæmi ber flestum saman um að fjárhagslega sjálfbært sveitarfélag hafi getu til að reka grundvallarþjónustu og innviði, takast á við fjárhagsleg áföll og framtíðaráskoranir án þess að slá af gæðum. Hins vegar hafa aðilar ekki komið sér saman um hvaða upplýsingar eða kennitölur í rekstri sveitarfélaga nái að lýsa best þessari stöðu. Unnið hefur verið að því að samræma reikningsskil sveitarfélaga og endurskoða fjármálakafla sveitarstjórnarlaga sem styður við fjárhagslega þáttinn en mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga er jafnframt lykilþáttur í að vinna markvisst að sjálfbærni sveitarfélaga
Ráðuneytið hefur jafnframt útbúið mælaborð fyrir sveitarfélögin þar sem fulltrúar þeirra geta sett inn upplýsingar um sitt sveitarfélag og fá þá yfirlit yfir hvar það stendur út frá framangreindum viðmiðum um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. Mælaborðin eru hugsuð sem innra stjórntæki fyrir sveitarfélögin og því eru þau ekki birt sérstaklega heldur verða send á hvert og eitt sveitarfélag. Sveitarfélögin geta þó sjálf birt niðurstöður sínar ef þau kjósa svo. Vonir standa til að viðmiðin og mælaborðin mælaborðið nýtist sem leiðsögn og tæki fyrir gagnadrifna stefnumótun og ákvarðanatöku fyrir sveitarfélög til langs tíma.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála
irn@irn.is