Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.9.–16.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-184/2026

Birt: 25.9.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar

Stjórnskipulag gagna

Málsefni

Innleiðing á reglugerð (ESB) 2022/868 um evrópskt stjórnskipulag gagna. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að endurnotum innan innri markaðarins á tilteknum flokkum gagna í vörslum opinberra aðila.

Nánari upplýsingar

Í reglugerðinni eru sett skilyrði um endurnotkun gagna í vörslu opinberra aðila sem njóta verndar á grundvelli viðskiptaleyndar, trúnaðarkvaðar í hagskýrslum, verndar hugverkaréttinda þriðju aðila eða verndar persónuupplýsingalaga, að svo miklu leyti sem slík gögn falla utan gildissviðs tilskipunar (ESB) 2019/1024 um opin gögn og endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera. Opinberir aðilar skulu tryggja að eðli gagna sem vernduð gögn sé varðveitt, þrátt fyrir endurnot. Þá er kveðið á um að gjöld fyrir endurnot skulu vera gagnsæ, án mismununar og rökstudd á hlutlægan hátt. Tilnefna skal eina eða fleiri stofnun sem aðstoðar opinbera aðila við að veita eða synja um aðgang á endurnotum á þeim flokkum gagna sem reglugerðin tekur til. Einnig skal tryggja að upplýsingar um skilyrði fyrir endurnot og gjöld séu aðgengileg í miðlægri upplýsingagátt.

Þá eru einnig settar reglur um aðila sem veita svokallaða gagnamilligönguþjónustu. Það eru hlutlausir þriðju aðilar sem tengja einstaklinga og fyrirtæki sem geyma gögn við aðra sem vilja nota gögnin. Þessir aðilar skulu skrá sig hjá lögbæru stjórnvaldi og þurfa að uppfylla strangar kröfur til að tryggja hlutleysi. Til viðbótar eru settar reglur um gagnavild, þ.e. þegar einstaklingur og fyrirtæki veita samþykki sitt eða leyfi til að gera gögnin, sem þau búa til, aðgengileg til notkunar í þágu almennings, af fúsum og frjálsum vilja og án endurgjalds. Lögbær stjórnvöld skulu halda skrár yfir aðila sem veita þá þjónustu og sinna eftirliti.

Í V. kafla reglugerðarinnar er fjallað um lögbær yfirvöld og málsmeðferðarákvæði. Lögbær yfirvöld á sviði gagnamilligönguþjónustu og lögbær yfirvöld sem annast skráningu gagnavildarstofnana geta verið sama stofnunin. Lögbær yfirvöld skulu vera óháð veitendum slíkrar þjónustu. Lögbær yfirvöld hafa eftirlit og umsjón með því að veitendur gagnamilligönguþjónustu og að viðurkenndar gagnavildarstofnanir uppfylli kröfur reglugerðarinnar. Þau hafa umsjón með skráningu og eftirliti og geta beitt viðurlögum, sem kveðið er á um í frumvarpinu. Lögbær yfirvöld skulu halda opinbera landsskrá yfir viðurkenndar gagnavildarstofnanir og skulu veita framkvæmdastjórninni og öðrum lögbærum yfirvöldum innan EES á þessu sviði upplýsingar. Einstaklingar og lögaðilar hafa rétt á að leggja fram kvörtun í tengslum við mál sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Lögbært yfirvald þarf að upplýsa kvörtunaðila um framvindu málsmeðferðar, þá ákvörðun sem er tekin og skilvirk réttarúrræði. Lagt er til að ráðherra tilnefndi lögbært yfirvald í reglugerði settri með stoð í lögunum.

Að lokum eru kveðið á um Evrópska gagnanýsköpunarráðið, sem veitir ráðgjöf um framkvæmd reglugerðarinnar, og sérstakar reglur um verndarráðstafanir sem þarf að fylgja þegar ópersónuleg gögn eru flutt til landa utan EES, til að tryggja að upplýsingarnar séu verndaðar með sama hætti þrátt fyrir flutninginn.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa nýsköpunar, rannsókna og stafrænna mála.

mnh@mnh.is