Mál nr. S-162/2026

Birt: 31.8.2026

Fjöldi umsagna: 0

Annað

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði

Málsefni

Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur sett tillögu um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög 48/2011.

Nánari upplýsingar

27. mars 2024 féll dómur Hæstaréttar varðandi mál nr. 36/2023. Í málinu deildu aðilar um gildi ákvörðunar umhverfis- og auðlindaráðherra 10. ágúst 2019 um að friðlýsa vatnasvið Jökulsár á Fjöllum gagnvart orkuvinnslu vegna virkjunarkosta1með uppsett rafafl 10 MW eða meira.

Niðurstaða dómsins var að friðlýsing verndarsvæðis Jökulsár á Fjöllum frá 10. ágúst 2019 var felld úr gildi. Forsenda dómsins var að framkvæmd friðlýsingarinnar hafi verið ólögmæt, þar sem Alþingi hafði ekki fjallað um afmörkun verndarsvæðisins líkt og lög nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun gera ráð fyrir. Í kjölfarið var friðlýsing Jökulsár á Fjöllum afturkölluð með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 7. júní 2025. Friðlýsing verndarsvæðis Gjástykkis var einnig afturkölluð sama dag, en landeigendur þess svæðis höfðu áður stefnt ríkinu fyrir dóm til greiðslu bóta vegna friðlýsingarinnar. Málsástæður ríkisins féllu niður með dómi Hæstaréttar og var friðlýsingin því afturkölluð.

Í framhaldi ákvað umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að afturkalla sex friðlýsingar verndarsvæða, sem enn stóðu eftir, með hliðsjón af fordæmisgildi dómsins og meginreglum stjórnsýslulaga um afturkallanir ógildanlegra ákvarðana. Friðlýsingarnar voru framkvæmdar á sömu forsendum og var eingöngu um að ræða friðlýsingar á grundvelli verndarflokks verndar- og orkunýtingaráætlunar.

Í kjölfar afturkallananna vísaði ráðherra málinu formlega til verkefnisstjórnar rammaáætlunar með þeim fyrirmælum taka umrædda virkjunarkosti aftur til mats í samræmi við ákvæði laganna um verndar- og orkunýtingaráætlun þar sem verndarsvæði þeirra væru afmörkuð með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir.

Niðurstöður mats verkefnisstjórnar liggja nú fyrir í meðfylgjandi fylgiskjölum.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Umhverfis- og orkustofnun

ran.jonsdottir@uos.is