Til umsagnar
3.–17.11.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-152/2026
Birt: 3.11.2026
Fjöldi umsagna: 0
Annað
Atvinnuvegaráðuneytið
Ferðamál
Til umsagnar eru drög að rannsóknaráætlun Ferðamálastofu um rannsóknir og gagnaöflun í ferðaþjónustu fyrir tímabilið 2026–2028.
Samkvæmt reglugerð nr. 20/2020 um gagnaöflun og rannsóknir á sviði ferðamála skal Ferðamálastofa meta þörf fyrir gagnaöflun, greiningar og rannsóknir, móta rannsóknaráætlun, og láta framkvæma rannsóknir samkvæmt rannsóknaráætlun í samræmi við lög og reglur þar að lútandi. Rannsóknaráætlun er áætlun til þriggja ára um þá gagnaöflun, greiningar og rannsóknir sem stjórnvöldum er nauðsynleg til að taka stefnumótandi ákvarðanir um uppbyggingu og þróun ferðaþjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi. Samkvæmt reglugerðinni skulu drög að rannsóknaráætlun Ferðamálastofu birt í samráðsgátt stjórnvalda og að loknu samráði gerir stofnunin tillögu að rannsóknaráætlun til ráðherra.
Ráðuneytinu hafa borist drög að rannsóknaráætlun í ferðaþjónustu, frá Ferðamálastofu, fyrir 2026-2028 og eru þau birt hér í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Áætlunin er unnin með hliðsjón af ráðgjöf ráðgefandi nefndar um gagnaöflun og rannsóknir og 6. gr. reglugerðar nr. 20/2020. Ráðgefandi nefnd er undir forystu Þóru Helgadóttur Frost.
Í drögum að rannsóknaráætlun 2026-2028 er gerð grein fyrir viðfangsefnum rannsókna á sviði ferðaþjónustu og farið yfir einstök verkefni sem eru:
Farþegatalningar,
Landamærarannsókn,
Viðhorf Íslendinga til ferðaþjónustu,
Ferðahegðun Íslendinga,
Dreifing ferðamanna um landið,
Fjárhagur og afkoma fyrirtækja,
Gagnagrunnur ferðaþjónustunnar.
Áreiðanlegar tölfræðilegar upplýsingar, rannsóknir og greining gagna eru afar mikilvægar í ferðaþjónustu, líkt og í öðrum lykilatvinnugreinum þjóðarinnar. Áfram verður unnið að því að efla þá þætti eins og fram kemur meðal annars í ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa auðlinda
atrn@atrn.is