Til umsagnar
15.–30.6.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-101/2026
Birt: 15.6.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Áformað er að setja reglugerð til að innleiða tvær framseldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem varða útnefningu mikilvægra þriðju aðila sem veita upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu.
Um ræðir áform um setningu reglugerðar á grundvelli laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar, nr. 78/2025, en með þeim var innleidd hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2554 um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann (hér eftir DORA).
Með DORA var komið á svonefndum eftirlitsramma mikilvægra þriðju aðila sem veita upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu. Uppfylli innlendur þriðji aðili sem veitir slíka þjónustu skilyrði útnefningar sem mikilvægur og fellur þar með undir eftirlitsramma II. þáttar V. kafla DORA, verður Eftirlitsstofnun EFTA falið hlutverk aðaleftirlitsaðila gagnvart honum. Á meðal viðmiða fyrir útnefningu er veiting þjónustu þvert á landamæri og möguleg kerfislæg áhrif á stöðugleika, samfellu eða gæði fjármálaþjónustu. Með framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1502 er nánar kveðið á um skilyrði útnefningar þriðju aðila undir eftirlitsrammann. Ekki er vitað til þess að á útnefningu íslenskra aðila reyni í næstu framtíð.
Aðaleftirlitsaðili hefur samkvæmt DORA heimildir til upplýsingaöflunar, almennra rannsókna, úttekta, útgáfu tilmæla og úrbótatillagna. Mikilvægum þriðja aðila sem fellur undir eftirlitsrammann ber að vinna með aðaleftirlitsaðila í góðri trú og greiða eftirlitsgjald, en nánar er kveðið á um ákvörðun fjárhæðar eftirlitsgjalda og með hvaða hætti þau gjöld skuli greidd í framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1505.
Fyrirhugaðar aðlaganir vegna upptöku framseldra reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1502 og 2024/1505 taka mið af tveggja stoða kerfi EES-samningsins.
Reglugerðin verður sett með heimild í 1. og 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 78/2025 og er gert ráð fyrir að hún öðlist þegar gildi.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is