Til umsagnar
3.2.–10.3.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-27/2026
Birt: 3.2.2026
Fjöldi umsagna: 0
Annað
Innviðaráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Vefkönnun þar sem óskað er eftir úrbótatillögum um regluverk um verkefni sveitarfélaga. Ekki er tekið á móti umsögnum í gegnum samráðsgáttina.
Óskað er eftir ábendingum og úrbótatillögum um verkefni og regluverk sveitarfélaga og fram koma í yfirliti yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga, sem innviðaráðuneytið gefur út árlega. Um er að ræða verkefni í ríflega 60 lögum sem heyra undir 11 ráðuneyti. Greina á hvort og þá hvar lagðar eru óþarfar eða íþyngjandi kvaðir á sveitarfélög og/eða einstaklinga, fyrirtæki eða félagasamtök sem leita þurfa til sveitarfélaga í störfum sínum eða einkalífi. Ekki er spurt um reglur sem sveitarfélögin setja sér sjálf um framkvæmd verkefnanna.
Mikilvægt er að fá tillögur að úrbótum til að skilja hvernig megi bæta stöðuna. Þó er rétt að hafa það í huga að einföldun regluverks er alltaf með þeim fyrirvara að ekki verði gengið á rétt íbúa til þjónustu. Markmiðið er því öðru fremur að sveitarfélög fái aukinn sveigjanleika til að sinna betur þeim lögbundnu verkefnum og þjónustu sem þeim ber að veita. Afraksturinn verði einfaldari stjórnsýsla, betri þjónusta og ánægðari íbúar.
Öll ráðuneyti koma að verkefninu með tengingu við málaflokka sína en innviðaráðuneytið heldur utan um verkefnið. Ráðuneytið mun taka saman ábendingar og tillögur og koma til viðkomandi ráðuneyta sem taka afstöðu til þeirra á sínum forsendum og vinna áfram fýsilegar breytingatillögur.
Verkefnið er í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar um hagræðingu innan stjórnsýslunnar og að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.
Umsagnir eru ekki birtar í gáttinni.
Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála
irn@irn.is