Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

17. júní 2026

Gestamóttaka / Front Desk Agent - Miðbæjarhótel/Centerhotels ehf.

Eures
100%
Höfuðborgarsvæðið

Gestamóttakan er „hjarta“ hótelsins.
Móttökustarfsmaður er oftast sá starfsmaður sem gestirnir eiga mest samskipti við því er mikilvægt að sinna þeirra þörfum ávalt með heiðarleika, jákvæðni og þjónustulund í huga.
Markmiðið er að taka vel á móti gestunum, láta þeim líða vel á meðan dvöl stendur og kveðja þá með bros á vör.

Helstu verkefni í starfi :
• Veita framúrskarandi þjónustu við gesti og samstarfsmenn.
• Móttaka gesta og þjónusta við gesti hótelsins.
• Afgreiðsla á bar
• Undirbúningur og umsjón með veislum,fundum og öðrum viðburðum
• Notkun á hótel og bókunarkerfi Centerhotels.
• Aðstoða söludeild við bókanir ef við á
• Símsvörun og aðstoð við símsvörun á öllum hótelunum
• Svörun ummæla gesta á netmiðlum
• Svörun gesta í tölvupósti
• Almennt gæðaeftirlit
• Umjón og yfirferð reikninga
• Taka við greiðslu gesta fyrir gistingu og þjónustu hótelsins
• Sjá til þess að vinnuaðstaða sé ávalt hrein og skipulögð
• Skráning og sala í ferðir og selja alla þjónustu hótelsins
• Uppgjör peningakassa
• Vaktaskýrsla á hverri vakt.

Hæfniskörfur:
• Framúrskarandi samskiptahæfni og gestrisni
• Rík þjónustulund
• Góð tök á ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
• Íslenskukunnátta er mikill kostur
• Lausnamiðuð hugsun
• Jákvæðni og heiðarleiki
• Frumkvæði í starfi
• Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
• Talnaglöggni
• Þekking á íslandi er mikill kostur
• Reynsla á sama eða sambærulegu starfi er mikill kostur
• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
• Reynsla í notkun á hótel- og bókunarkerfum mikill kostur

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst, en leitað er að framtíðar starfsmanni

***Vinnustaðurinn útvegar ekki húsnæði fyrir starfsfólk***

Unnið er á 12 tíma vöktum. Dagvaktir vinna 2-2-3 vaktavinnu, en næturvakt vinnur 7-7 vaktavinnu

Laun eru samkvæmt kjarasamningum VR / SA fyrir gestamóttöku og hótel.

Umsóknarfrestur er til og með 17 júní 2026.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út umsókn með ferilskrá í viðhengi hér: https://form.vinnumalastofnun.is/eures and put "260603-02" in the field for employer.

Nánari upplýsingar um starf má fá með því að senda tölvupóst á netfangið: hr@centerhotels.com