Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Skemmdarverk á Seltjarnarnesi upplýst

4. nóvember 2026

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn á skemmdarverkum á bílum á Seltjarnarnesi aðfaranótt sl. mánudags, en karlmaður um þrítugt hefur játað sök í málinu. Eins og fram hefur komið voru brotnar rúður í nálægt þrjátíu bifreiðum við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd.

Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð, en henni bárust margar ábendingar við rannsókn málsins.