Amiodarone hýdróklóríð
Amiodarone hýdróklóríð
Sérlyfjaheiti: Cordarone®
Eiginleikar: Cordarone hægir á leiðslukerfi hjartans og hjartslætti. Með því kemur það í veg fyrir margar tegundir hjartsláttartruflana.
Ábendingar: Hjartastopp vegna VF/VT. VT með púls. Óstabíll A-flutter eða A-fib.
Frábendingar: Alvarlegt ofnæmi. Engar í hjartastoppi.
Skammtar:
▸Hjartastopp: 300mg IV/IO eftir 3 stuð síðan 150mg eftir 5 stuð
▸VT með púls: Dreypi: 300 mg IV/IO, blandað í 5% glúkósa og gefa á 10-60 mín. Má endurtaka 1x
▸📞 A-Fib eða A-Flutter: Dreypi: 300 mg IV/IO, blandað í 5% glúkósa og gefa á 10-60 mín.
Börn:
▸ Hjartastopp: 5 mg/kg IV/IO eftir 3 stuð (mest 300mg) síðan 5mg/kg eftir 5 stuð (mest 150 mg)
Ath: Íhuga rafvendingu sem fyrstu meðferð hjá óstabílum sjúklingum með hraðtakt.
Dreypi: Gefa á 10-60 mín, lengja innrennslistíma ef lágþrýstingur. Einungis má blanda í 5% glúkósa.
Varúð: Ef grunur um skert gegnflæði og/eða lágþrýsting þar sem amíódarón dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hefur æðavíkkandi áhrif, sérstaklega ef lyfið er gefið hratt. Hægtaktur, gáttatif vegna blóðsýkingar.
Aukaverkanir: Hægtaktur, lækkaður blóðþrýstingur, hjartabilun, hjartsláttartruflanir, AV-blokk, bradycardia, ógleði/uppköst, lengt QT bil, auk fjölda aukaverkana sem koma fram við langvarandi notkun
Nánar: Hjartsláttaróreglulyf og æðavíkkandi. Blönduð class I og III antiarrythmic áhrif sem eykur torleiðnitímann í hjartavöðvafrumum og aukaleiðsluböndum (e.atrioventricular bypass tracts) auk þess að vera veikur Na-ganga blokkari (I). Slakar einnig á sléttum vöðvum og hjartavöðva. Veldur minnkuðu viðnámi í æðum (β- og Ca-blokkara áhrif).
Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [P] = paramedic (bráðatæknir)
Heimildir:
Al-Khatib, S. M., Stevenson, W. G., Ackerman, M. J., Bryant, W. J., Callans, D. J., Curtis, A. B., ... & Page, R. L. (2024). Amiodarone: Clinical uses, administration, and adverse effects. UpToDate. Retrieved June 24, 2025, from https://www.uptodate.com/contents/amiodarone-clinical-uses-administration-and-adverse-effects
Sanofi-aventis Norge AS. (2022). SmPC fyrir Cordarone töflur [PDF]. Lyfjastofnun (Sérlyfjaskrá). Sótt af https://old.serlyfjaskra.is/FileRepos/ffdfeb44-8861-ec11-8111-005056a1b61b/Cordarone_t%C3%B6flur_Sanofi-aventis_SmPC.pdf
NHS. (2021). Medusa: Injectable Medicines Guide. Sótt af https://www.medusaimg.nhs.uk
Fass. (2022). SPC Cordarone (Injektionsvätska, lösning 50 mg/ml). Sótt af https://www.fass.se/LIF/product?userType=2&nplId=19870508000059&docType=3
Útgefið: 30.07.2025
Höfundur: Bergur Ingi Geirsson, BSc bráðatæknir
Ábendingar: Helga Rut Steinsdóttir lyfjafræðingur, Vicente SBI bráðalæknir, Þóra Elísabet Kristjánsdóttir heimilislæknir
Samþykkt: DrVSBI
Rafræn útgáfa. Ekki er hægt að treysta því að útprentað eða vistað eintak sé rétt útgáfa. Þessar leiðbeiningar eru eingöngu til leiðsagnar; þeir sem starfa samkvæmt þeim bera ábyrgð á réttum vinnubrögðum og gagnrýnni notkun þessara leiðbeininga.
