Hlutverk embættis landlæknis er að stuðla að heilbrigði landsmanna, meðal annars með góðri og öruggri heilbrigðisþjónustu, heilsueflingu og öflugum forvörnum.

Starfsleyfi og vottorð
Embætti landlæknis veitir heilbrigðisstarfsfólki starfsleyfi og gefur út vottorð sem staðfesta gild starfsleyfi.

Rekstur heilbrigðisþjónustu
Embætti landlæknis gefur út staðfestingu á að rekstur heilbrigðisþjónustu uppfylli faglegar lágmarkskröfur.

Ráðleggingar um mataræði
Holl og fjölbreytt fæða er mikilvæg fyrir heilsu og vellíðan. Ráðlagt er að auka neyslu grænmetis, ávaxta, fisks og heilkornavara. Mælt er með lítilli neyslu á rauðu kjöti og að takmarka neyslu á unnum vörum sem innihalda mikinn viðbættan sykur, mettaða fitu og salt.

Bólusetningar
Bólusetning er ónæmisaðgerð sem ætlað er að koma í veg fyrir alvarlega smitsjúkdóma. Almennar upplýsingar um bólusetningar, um bóluefni, þá sjúkdóma sem bólusett er við og aukaverkanir bólusetninga.
Mælaborð
Ýmis tölfræði um lýðheilsu og starfsemi heilbrigðisþjónustu er aðgengileg í gagnvirkum mælaborðum. Undirstaða mælaborðanna eru gögn í heilbrigðisskrám og könnunum embættisins.
Fréttir og tilkynningar
Öndunarfærasýkingar – Vika 14 árið 2025
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 14 árið 2025 (31. mars – 6. apríl 2025).
Tökum höndum saman - grípum til aðgerða gegn áreitni og ofbeldi í vinnuumhverfinu
Vinnueftirlitið stendur nú fyrir aðgerðavakningunni #Tökum höndum saman: Grípum til aðgerða gegn áreitni og ofbeldi í vinnuumhverfinu.